Stórfyrirtækin í tapi 24. nóvember 2010 18:27
Helmingur stærstu fyrirtækja landsins var rekinn með tapi á síðasta ári. Þriðjungur hefur ekki skilað ársreikningi til ríkisskattstjóra. Þetta kemur fram í gögnum sem CreditInfo aflaði fyrir fréttastofuna. Meðal þeirra félaga sem rekin voru með tapi í fyrra eru Actavis, Alcoa, Bakkavör, Byko, Hagar, Hekla, Húsasmiðjan, Icelandair Group, Marel, Síminn og Teymi. Fimm af stærstu fyrirtækjunum eru með neikvætt eigið fé, skulda meira en þau eiga. Teknar voru saman upplýsingar um 77 stærstu fyrirtæki landsins en af þeim hafa 24 ekki enn skilað inn ársreikningi fyrir árið 2009. Af þeim sem skiluðu ársreikningi greiddu 9 út arð á síðasta ári. Alcan, Alfesca, Ísfélag Vestmannaeyja, Íslenskir aðalverktakar, Landsbankinn, Lyfja, N1, Olís og Ölgerðin eru meðal þeirra sem ekki hafa skilað ársreikningi, en skilafrestur rann út þann 31. ágúst síðastliðinn. Í samtali við fréttastofu í dag sagði Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri að til framtíðar væri eina raunhæfa lausnin við þessum vanda að slíta þeim félögum sem ekki standi skil á ársreikningum og flytja þau yfir í fulla ábyrgð eigenda. Viðurlögin sem nú eru í gildi, sektir upp á 250 þúsund krónur, séu ekki nægjanlega áhrifamikil og því verði breytt. Hann sagði það ekki ganga að félög kæmust upp með að skila ekki ársreikningi mánuðum og jafnvel árum saman.
Mest lesið Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Viðskipti innlent Verðlagssæti Íslands enn eitt árið komi ekki á óvart Neytendur Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað Viðskipti innlent „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Viðskipti innlent Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Sjá meira