Viðskipti innlent

Fengu vopn til að verja þrotabúið

Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra.
Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra. Mynd/Anton Brink

Á meðan breskum lögum um eignafrystingu, sem kölluð hafa verið hryðjuverkalög, var beitt gegn þrotabúi Landsbankans var ekki hægt að ganga að þrotabúinu. Þetta segir Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, í nýrri bók þar sem fjallað er um bankahrunið.

Þannig var ákveðin vörn fólgin í beitingu hryðjuverkalaganna fyrir íslensk stjórnvöld, þar sem annars hefðu aðrir getað gert kröfu í þrotabúið, og þá væri minna til skiptanna upp í Icesave-kröfurnar, segir í bók Árna.

„Í hryðjuverkalögunum fólst ákveðið vopn fyrir okkur til að verja þrotabú Landsbankans og þar af leiðandi töldu menn að það væri kannski ekki ráðlegt að þrýsta of mikið á að aflétta hryðjuverkalögunum af Landsbankanum alveg strax," segir í bókinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×