Ráðherra vill fresta aðskilnaði dreifiveitna 24. nóvember 2010 12:14 Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
Iðnaðarráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi um að aðskilnaði dreifiveitna frá annarri starfsemi orkufyrirtækja verði frestað til ársins 2012. Orkuveita Reykjavíkur telur að aðskilnaður framleiðslu og dreifingar orku hjá fyrirtækinu hefði leitt til enn frekari verðhækkana á orku til almennings og fyrirtækja. Með lögum sem sett voru í maí 2008, nokkrum mánuðum fyrir hrun, var orkufyrirtækjum gert að aðskilja orkuframleiðslu og dreifingu í starfsemi sinni. Þetta átti að tryggja samkeppnisstöðu orkuframleiðslufyrirtækja við sölu á orku inn í dreifikerfi landsmanna. Í desember 2008 samþykkti hluthafafundur Hitaveitu Suðurnesja að fara í þennan aðskilnað og var fyrirtækinu skipt upp í HS-orku annars vegar og HS-veitur hins vegar í janúar 2009. Flestir kannast við hvað gerðist í framhaldinu þegar Magma Energy eignaðist HS orku. Ekki var gengið í þessar breytingar hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem óskaði eftir því að gildistöku laganna yrði frestað og var það gert og gildistökunni frestað til 1. janúar 2010. Að beiðni Orkuveitunnar var gildistökunni svo frestað í annað sinn fram í janúar 2011 og í dag mælir Katrín Júlíusdóttir fyrir frumvarpi um að gildistöku laganna verði frestað í þriðja sinn og nú fram í janúar 2012. Tvíþætt rök Rökin að baki kröfu um aðgreiningu samkeppnis- og sérleyfisþátta í rekstri orkufyrirtækja voru tvíþætt. Annars vegar þyrfti að gera þessa kröfu svo að unnt væri að setja reglur um opinbert eignarhald fyrirtækja sem stunda sérleyfisstarfsemi. Hins vegar væri með aðgreiningu þessara þátta í starfsemi raforkufyrirtækja, betur unnt að tryggja að allir raforkuframleiðendur sætu við sama borð. Iðnaðarráðuneytið mun nýta þann tíma sem gefst til 1. janúar 2012 til að láta fara fram hagfræðilega úttekt á því hvort sá fyrirtækjaaðskilnaður sem mælt er fyrir um í viðeigandi gerðum Evrópusambandsins á sviði raforkumála, eigi að öllu leyti við um markaðsaðstæður hér á landi og hvort hann sé til þess fallinn að skapa samkeppnisumhverfi sem sé neytendum raforkuþjónustu til hagsbóta.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira