Íslendingur í Svíþjóð fær ekki sparifé í bílakaup 4. október 2010 05:00 Vilhjálmur Baldursson „
Ef þessi upphæð ógnar stöðugleika í gengis- og peningamálum á Íslandi þá er staðan mun verri þarna heima en ég gerði mér grein fyrir. Það er bæði óskiljanlegt og óréttlátt að beiðni minni hafi verið hafnað," segir Vilhjálmur Baldursson vélfræðingur, sem búsettur er í Svíþjóð. Hann sótti um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál til Seðlabanka Íslands til að færa hluta af sparifé sínu til Svíþjóðar. Vilhjálmur býr í Malmö ásamt eiginkonu sinni og eiga þau þrjú börn. Þau fluttu til Danmerkur haustið 2007 og til Svíþjóðar strax í janúar árið eftir. Vilhjálmur starfar sem svæðissölustjóri varahluta hjá MAN Diesel í Kaupmannahöfn. „Mig vantar þessa peninga til að kaupa nýjan fjölskyldubíl. En í skilningi laganna er ég erlendur aðili þar sem ég hef fasta búsetu hér ytra. Það breytir því ekki að ég er íslenskur ríkisborgari sem virðist engu skipta," segir Vilhjálmur. Í bréfi SÍ til Vilhjálms segir að við mat á beiðni um undanþágu frá haftareglunum skuli bankinn líta til þess hvaða afleiðingar takmarkanir á fjármagnshreyfingum hafa fyrir umsækjandann annars vegar, og hvaða áhrif undanþága hefur á stöðugleika í gengis- og peningamálum hins vegar. „Ég er þess fullviss að frysting á því sem við höfum lagt fyrir á Íslandi hefur meiri afleiðingar fyrir mína fjölskyldu en fyrir fjármálastöðugleikann á Íslandi og þessi rök halda einfaldlega ekki. Hef ég þó skilning á því ástandi sem er heima," segir Vilhjálmur. Honum finnst hlálegt að í bréfi SÍ er vísað beint í fyrstu reglu um gjaldeyrismál. Markmið þeirra sé að takmarka eða stöðva tímabundið fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti „sem valda að mati SÍ alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum". Þá er erlendum aðila heimilt, samkvæmt reglum um gjaldeyrismál, að kaupa erlendan gjaldeyri hjá viðskiptabanka sínum á Íslandi fyrir allt að jafnvirði þriggja milljóna króna á ári. Til þess þarf að sýna fram á að notkun fjárins sé vegna eigin framfærslu. Millifærsla á gjaldeyri til bifreiðakaupa, eins og í tilfelli Vilhjálms, fellur ekki undir slíka undanþágu, samkvæmt bréfi SÍ. -shá
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira