Norræn samkeppni meðal hagfræðinga 15. janúar 2010 08:39
Norræna ráðherranefndin, í samstarfi við fjármálaráðuneytið í Danmörku, efnir til samkeppni meðal hagfræðinga með verðlaunum sem nema 250.000 danskra króna.. Verðlaunin, þar á meðal fyrstu verðlaun sem eru 150.000 danskar krónur, verða veitt fyrir bestu greiningu á því hvort efnahagsstefna undanfarins hagsveiflutímabils hafi verið í samræmi við markmið um stöðugleika í hagsveiflu.Fjallað er um málið á vefsíðunni norden.org. Þar segir að gert sé ráð fyrir að greiningin taki til Norðurlanda og einnig annarra landa sem hlut eiga að máli. Umsóknarfrestur er 1. júlí 2010. Leiðandi norrænir hagfræðingar munu meta innsendar tillögur og tilnefna vinningshafa sumarið 2010.Á undanförnu hagsveiflutímabili hefur í mörgum ríkjum orðið til ósamræmi í almennri efnahagsþróun og ríkisfjármálum. Því skiptir máli að kanna hvort, og þá hve mikið, fjármála- og peningastefna hefur haft áhrif í þá átt að leiðrétta þetta ósamræmi.Norræna ráðherranefndin, í samstarfi við fjármálaráðuneytið í Danmörku, ákvað því að efna til samkeppni með það að markmiði að varpa ljósi á fjármála- og peningamálastefnu Norðurlandanna og hvort stefna þeirra hafi verið í samræmi við markmið sem stuðla áttu að stöðugleika.Greiningin má gjarnan vera samanburðarrannsókn þar sem Norðurlönd eru borin saman við önnur ríki, til að mynda í ESB. Æskilegt er að tekið verði tillit til áhrifa (skammtíma og langtíma) af fjármála- og peningastefnu á efnahagskerfið þar sem það hefur þýðingu.Í mati verður lögð áhersla á, að greiningin byggi á fræðilegum grunni og rannsóknum og að sjónum verði beint að þeirri stefnu sem fylgt var á síðasta hagsveiflutímabili. Í tillögunum skal gefa rökstudd svör við því að hve miklu leiti stjórnmálastefna getur jafnað út hagsveiflur.Í matinu verður einnig lögð áhersla á faglega nákvæmni og framsetningu á niðurstöðum sem geta haft áhrif á pólitíska stefnumótun.
Mest lesið Fjárfestu í karllægum félögum báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Sjá meira