Nýr Icesave samningur Sigríður Mogensen skrifar 15. nóvember 2010 18:31
Samninganefndir Íslands, og Breta og Hollendinga, hafa komið sér saman um grundvallaratriðin í nýju samkomulagi vegna Icesave reikninga Landsbankans. Drögin hafa verið kynnt hagsmunaaðilum. Samkvæmt þeim munu 40 til 60 milljarðar falla á íslenska ríkið. Viðræður um Icesave hófust á ný eftir nokkurra mánaða hlé í júlí á þessu ári og voru þá haldnir nokkrir formlegir fundir. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa samninganefndirnar nú komið sér saman um grundvallaratriði í nýju samkomulagi. Það mun byggja á töluvert lægri vöxtum en áður var rætt um, eða um 3% vöxtum. Þá munu Bretar og Hollendingar hafa gefið eftir í kröfum sínum hvað varðar vaxtatímabilið og hafa nú samþykkt 9 mánaða vaxtahlé. Nokkur lagaleg atriði standa þó enn út af borðinu og er samningurinn ekki að fullu frágenginn. Heimildir fréttastofu herma ennfremur að fjármálaráðuneytið hafi kynnt hagsmunaaðilum, svo sem stjórnarandstöðu og aðilum vinnumarkaðarins efni samkomulagsins. Verði niðurstaðan sú sem hún stefnir nú í við undirritun munu í mesta lagi 40 til 60 milljarðar falla á íslenska ríkið. Er þá gert ráð fyrir núvirðingu upp á 6% samkvæmt heimildum. Ekki munu þó allir vera á eitt sáttir um þá aðferð og telja þeir sem gagnrýna hana að gert sé ráð fyrir of hárri prósentutölu við núvirðingu.
Mest lesið Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira