Veltan í dagvöruversluninni jókst í maí 10. júní 2010 11:47
Rannsóknarsetur verslunarinnar birti tölur um veltu í smásöluverslun í maí nú í morgun. Frá fyrri mánuði jókst veltan í dagvöruverslun um 7,6% á föstu verðlagi.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þetta gæti bent til þess að einkaneyslan sé nú aftur að taka við sér eftir tímabundið bakslag í vor. Þannig virðist verslun hafa tekið vel við sér í maí á öllum sviðum.Sala áfengis jókst um 21% frá fyrri mánuði, velta í fataverslunum jókst um 33% og verslun með skó jókst um 23% frá fyrri mánuði. Velta í verslun raftækja jókst um 12% frá fyrri mánuði og um 8% í húsgagnaverslun.Veltan í öllum flokkum verslana í nýliðnum maí er þó mun minni en í sama mánuði fyrir ári síðan. Veltan í dagvöruverslun hefur dregist saman um 3,7% á föstu verðlagi borið saman við maí 2009. Þá hefur velta fataverslana dregist saman um 33% á sama tímabili og sala á skóm um 23%. Loks hefur sala á raftækjum dregist saman um 12%.Enn eru heimilin því með lágmarks umsvif og þarf engan að undra í ljósi þess að atvinnuleysi er enn afar mikið, ekki er útséð með að eignaverð muni enn lækka, frekari skattahækkanir gætu verið í pípunum og kaupmáttur launa hefur nú rýrnað um 13% frá því að hann var hér mestur í ársbyrjun 2008.Telja má líklegt að kaupmáttur komi til með að skerðast enn frekar á næstunni enda nokkuð ljóst m.v. ástandið á vinnumarkaði að samningsstaða flestra launþega er nokkuð veik og því lítill þrýstingur á launahækkanir næsta leytið. Ekki er því enn hægt að kveða upp úr með hvort hillir endanlega undir lokin á samdrætti í smásöluverslun þrátt fyrir nokkra aukningu milli apríl og maí síðastliðins.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira