Icelandair flýgur til Þrándheims 10. júní 2010 17:23 Áhöfnin í fyrsta fluginu til Þrándheims.
Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Þrándheims í Noregi. Flogið verður til og frá borginni tvisvar í viku til 8. október í haust með viðkomu í Bergen á leiðinni frá Íslandi. Í tilefni dagsins tóku borgarstjóri Þrándheims, Tore O Sandvik, á móti Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair og öðrum farþegum þegar Icelandair þotan lenti í Þrándheimi, en þar var haldin stutt móttökuathöfn, segir í tilkynningu. Icelandair hefur um árabil flogið daglegt áætlunarflug til Osló, en hóf fyrir þremur árum reglulegt flug til Bergen á vesturströnd Noregs. Í sumar verður flogið 10 ainnum í viku til Osló, fjórum sinnum í viku til Bergen og tvisvar í viku til Þrándheims og Stavanger. Bókanir í Þrándheimsflugið eru umfram væntingar og hefur þegar verið bætt við flugi í haust af þeim sökum. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair sér mörg tækifæri í þessu aukna flugi til Noregs. “Viðskiptahugmyndin á bak við Icelandair er sú að nýta legu landsins á milli Norður-Evrópu og Norður-Ameríku til arðbærrar flugstarfsemi. Þessi samfélög á vesturströnd Noregs, Þrándheimur, Bergen og Stavanger, eru hvert um sig álíka fjölmenn og Ísland, þau hafa efnahagslegan styrk og mjög þróaðan ferðaiðnað, m.a. í tengslum við skemmtiferðaskip. Að auki eru sterk tengsl milli Íslands og þessa svæðis, bæði söguleg og atvinnuleg. Margir Íslendingar eru búsettir á þessum slóðum. Við teljum því að við getum byggt upp hagkvæmt flug á þessa staði og fengið farþega á öllum þremur markaðssvæðum okkar, þ.e. vestanhafs, á Íslandi og í Noregi. Við getum boðið upp á langtum betri tengingar til Kanada og Bandaríkjanna í gegnum Ísland frá þessum slóðum en áður hefur verið boðið upp á og reynslan síðustu ár lofar góðu um framhaldið”, segir Birkir Hólm í tilkynningunni. Hópur norskra flug- og ferðaþjónustuaðila, auk fjölmiðlamanna kom með fyrsta fluginu til Íslands. Þess má til gamans geta að skömmu eftir að eldgosið hófst í Eyjafjallajökli, eða dagana 18. og 19. apríl, flaug Icelandair 7 aukaflug til Þrándheims með farþega frá Íslandi, en þá voru allir aðrir flugvellir í vestanverðri Evrópu lokaðir.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira