Horfur úr neikvæðum í stöðugar Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. apríl 2010 06:00 gosið í eyjafjallajökli Í nýrri greiningu matsfyrirtækisins Moody‘s á lánshæfi ríkisins er ekki gert ráð fyrir nema óverulegum áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á efnahagslíf þjóðarinnar. Fréttablaðið/Vilhelm
Matsfyrirtækið Moody’s hefur breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs í stöðugar úr neikvæðum. „Horfum fyrir lánshæfisþak erlendra skuldbindinga var einnig breytt í stöðugar úr neikvæðum,“ segir í tilkynningu Seðlabanka Íslands í gær og tekið fram að breytingin eigi rætur sínar að rekja til bættrar erlendrar lausafjárstöðu ríkissjóðs vegna endurnýjunar fjármögnunar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og ríkisstjórnum Norðurlanda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafði Moody‘s nær lokið nýju mati og stefndi á útgáfu þegar ljóst varð föstudaginn 16. þessa mánaðar að stjórn AGS hefði samþykkt aðra endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og heimilað lán hingað á grundvelli hennar. Matið var því tekið upp og birt í gær, í stað fyrirhugaðrar birtingar síðasta mánudag. Í matinu sem fallið var frá var áfram gert ráð fyrir neikvæðum horfum á lánshæfismati ríkissjóðs. Í nýju mati Moody"s er haft eftir Kenneth Orchard, yfirmanni á sviði greiningar Moody‘s á ríkjum og gjaldmiðlum, að innflæði fjármagns á grundvelli efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS geti aukið á væntingar og stutt við efnahagslegan bata. Þá er það mat Moody‘s að þótt Icesave-deilan sé óleyst enn, þá liggi fyrir að hún hafi ekki komið í veg fyrir lánafyrirgreiðslu til landsins. Þá virðist líklegt að nýr Icesave-samningur verði íslensku þjóðarbúi hagfelldari en fyrra samkomulag. Í greiningu Moody‘s er jafnframt tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir miklum áhrifum gossins í Eyjafjallajökli á íslenska hagkerfið, enda sé það fjarri helstu þéttbýliskjörnum og flugsamgöngur ekki raskast nema í nokkra daga. Greining Íslandsbanka sagði í gær nýtt mat Moody‘s vera „afar jákvæðar fréttir“ þar sem líkur hafi minnkað á að lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs detti niður í spákaupmennskuflokk. „Verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort hin lánshæfisfyrirtækin fylgja í kjölfarið. Sér í lagi væru það jákvæð tíðindi ef Standard & Poor’s myndu fara að fordæmi Moody’s og ríkissjóður héldist í fjárfestingarflokki hjá tveimur stærstu matsfyrirtækjunum. Slíkt myndi að mati okkar auka tiltrú markaða á landinu og flýta fyrir því að ríkissjóður geti farið að sækja fé á erlenda markaði þegar fram í sækir,“ segir í umfjölluninni.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sjá meira