Þýskir kröfuhafar fengu leið á ríkinu 24. apríl 2010 06:00 Bankasýsla ríkisins mun eignast stærsta sparisjóð landsins. Einu eignirnar í gömlu sparisjóðunum eru kröfur lánardrottna.fréttablaðið/GVA „
Þetta hefur vissulega neikvæð áhrif á lífeyrissjóðina. En við byrjuðum að færa niður kröfur okkar á sparisjóðina árið 2008 og höfum gert það reglulega síðan þá,“ segir Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Festa lífeyrissjóðs, um yfirtöku ríkisins á Sparisjóði Keflavíkur og Byr í gærnótt. Hann segir niðurfærsluna þegar komna fram í ársreikningi. Talið er að LSSR, Gildi og Lífeyrissjóður verzlunarmanna tapi á bilinu sex til átta milljörðum króna á yfirtöku ríkisins á sparisjóðunum tveimur. Forsvarsmenn sparisjóðanna beggja skiluðu starfsleyfum þeirra til Fjármálaeftirlitsins í fyrrakvöld og tók ríkið þá yfir í kjölfarið. Þetta eru stærstu sparisjóðir landsins og hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu þeirra síðan í fyrravor. Ráðamenn hafa talað þannig um sparisjóðina að stutt hafi verið í að ríkið legði þeim báðum til eiginfjárframlag sem miðaði að því að reisa þá við. Báðir sparisjóðirnir áttu að mynda hryggjarstykkið í endurreisn sparisjóðakerfisins. Óvíst er með næstu skref. Kröfuhafar sparisjóðanna höfðu frest út þessa viku til að taka samkomulagi ríkisins sem leiða átti til eiginfjárframlags úr ríkissjóði. Viðbúið var að ríkið myndi leggja Byr til um ellefu milljarða króna miðað við eiginfjárstöðu hans í árslok 2007. Kröfuhafar sparisjóðanna höfðu flestir samþykkt að færa kröfur sínar á hendur sparisjóðunum báðum verulega niður, eða í kringum sextíu prósent, síðasta haust. Eftir því sem næst verður komist mun hafa á þá hallað í flestum tilboðum hins opinbera eftir það og áttu kröfuhafar að fá undir þrjátíu prósentum um áramótin. Þetta sættu þýsku kröfuhafarnir sig ekki við, ekki síst Bayerische Landesbank, sem hefur tapað háum fjárhæðum á viðskiptum sínum hér. Því hafi hann ákveðið að taka ekki tilboði ríkisins. Eignir sparisjóðanna hafa verið settar inn í nýtt félag sem heyrir undir Bankasýslu ríkisins og situr ekkert eftir í gömlu sparisjóðunum annað en kröfur lánardrottna. Ríkið, sem tryggir allar innstæður, mun leggja hvorum þeirra til fimm milljarða evra, jafnvirði 860 milljóna króna, í samræmi við Evróputilskipanir um fjármálafyrirtæki. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir viðbúið að sú fjárhæð hrökkvi skammt. „Þetta á ekki að verða mikil byrði fyrir skattgreiðendur. Við vonumst til að endurheimta það, svo sem með sölu eigna,“ segir hann. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira