Securitas fylgir ekki með í sölu Securitas 18. mars 2010 00:01 SECURITAS Deilur eru uppi um vörumerkið Securitas og myndmerkið sem því fylgir. Það er í eigu sænsks fyrirtækis sem hafnar því að það verði selt með félaginu úr þrotabúi Fons.fréttablaðið/anton
Sænska félagið Securitas AB hafnar því að vörumerkið Securitas fylgi með í kaupunum á þrotabúi öryggisfyrirtækisins Securitas hér á landi. Vörumerkið er skráð í eigu sænska fyrirtækisins hjá Einkaleyfisstofunni. Securitas er hluti þrotabús Fons, sem var í eigu Pálma Haraldssonar. Fyrirtækið er nú í söluútboði. Fyrst var ætlunin að hafa það opið, en fyrir skemmstu var ákveðið að halda því lokuðu. Heildarkröfur í búið nema rúmum 34 milljörðum. Fyrri umferð útboðsins hefur farið fram og bárust 18 tilboð í fyrirtækið. Þau eru óskuldbindandi, en í framhaldi valdi skiptastjóri átta fjárfesta sem fá að kynna sér frekari gögn sem ekki má fjarlægja úr sérstöku gagnaherbergi. Líkt og Fréttablaðið greindi frá deildu Landsbankinn og skiptastjóri um kröfu bankans um fullgilt veð í fyrirtækinu. Sú deila er fyrir héraðsdómi, en samkomulag hefur náðst um að söluverðið verði lagt til hliðar þangað til botn er kominn í deiluna. Landsbankinn hefur áskilið sér rétt til að ganga inn í kaupin, nái ekkert tilboðanna lágmarksupphæð. Gerð var krafa til þeirra sem byðu í fyrirtækið um að þeir gætu sýnt fram á að þeir ættu að lágmarki þrjú hundruð milljónir króna eða gætu uppfyllt skilyrði með lánsfjármagni úr banka. Heimildir blaðsins herma að bankinn krefjist 500 milljóna króna að lágmarki fyrir Securitas. Meðhöndlun þrotabús Fons, þar með talið Securitas, hefur verið nokkuð gagnrýnd. Meðal gagnrýnenda er Sigurður G. Guðjónsson, sem er lögmaður Pálma. Í pistli á Pressunni setti hann meðal annars spurningarmerki við það hvers vegna skiptastjóri væri nú með aðstoðarmönnum sínum að selja hlutabréf Fons í Securitas. Aðrir í fjármálalífinu, sem Fréttablaðið hefur rætt við, hafa einnig gagnrýnt að skiptastjóri sjái sjálfur, eða aðstoðarmenn hans, um sölu hlutabréfa. Óskar Sigurðsson skiptastjóri svarar því til að á fyrsta skiptafundi hafi verið bókað hverjir væru aðstoðarmenn skiptastjóra. Samkvæmt gjaldþrotaskiptalögum ráðstafi skiptastjóri eignum þrotabús. Ferli laganna hafi verið fylgt. Þar að auki séu óháður endurskoðandi og sjálfstæður fyrirtækjaráðgjafi til aðstoðar og unnið sé í samvinnu við fyrirtækjasvið Nýja Landsbankans. Þá áréttar hann að engum veðsettum eignum sé ráðstafað án samkomulags við veðhafa. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Sjá meira