Skuldatryggingaálag ríkissjóðs niður í 401 punkt 18. mars 2010 12:04
Skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands hefur lækkað verulega á síðustu vikum og hefur það ekki verið jafn "lágt" síðan í byrjun desember síðastliðinn. Nú í morgun stóð álagið til 5 ára í 401 punkti (4,01%), en í byrjun febrúar síðastliðinn stóð álagið í 675 punktum. Hefur það því lækkað um 274 punkta á þessu tímabili.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi lækkun áhættuálagsins á íslenska ríkið er þó síður en svo einsdæmi enda hefur skuldatryggingaálag ríkja almennt farið lækkandi á síðustu vikum. Skuldatryggingaálag Grikklands stóð þannig í 292 punktum í morgun en það fór hæst í 428 punkta í febrúarbyrjun og hefur því lækkað um 136 punkta á þessum tíma.Sömu sögu er að segja um skuldatryggingaálag ríkja sem einnig glíma við mikinn halla á opinberum fjármálum líkt og Grikkland. Skuldatryggingaálag Dubai, sem komst í fréttirnar í upphafi árs sökum lélegrar skuldastöðu, hefur lækkað verulega en um miðjan febrúar stóð álag furstadæmisins í 651 punktum en nú í morgun var álagið komið niður í 436 punkta.Þrátt fyrir þessa miklu lækkun skuldatryggingaálagsins á íslenska ríkið síðustu vikurnar er álagið enn afar hátt. Einungis sex önnur ríki eru með hærra áhættuálag en það íslenska, það er Argentína, Venesúela, Pakistan, Úkraínu, Írak og Dubai.Í raun er það fátt sem hefði átt að lækka áhættuálagið á íslenska ríkið umfram önnur ríki undanfarið. Eins og kunnugt er hefur ekkert þokast í átt til lausnar Icesave deilunnar og hefur það tafið fyrir framvindu annarra mikilvægra mála eins og lánafyrirgreiðslna frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndum.
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Sjá meira