Gríðarleg lækkun á verði sérbýla 19. janúar 2010 12:42
Í desember lækkaði verð á sérbýli um 5,8% frá fyrri mánuði en verð á íbúðum í fjölbýli um 1,3%. Frá því að íbúðaverð hér á landi náði hámarki í ársbyrjun 2008 hafa íbúðir í fjölbýli lækkað um 14% en verð á sérbýlum lækkað um 18,9%. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýjar tölur fr´q Fasteignaskrá Íslands. Í Morgunkorninu segir að lækkunin að raunvirði er augljóslega mun meiri, eða um 36,1% á fjölbýlum og 39,7% á sérbýlum. Þessi þróun kemur ekki óvart miðað við það árferði sem hér ríkir enda má ætla að mun fleiri hafi kosið það að minnka við sig í kreppunni frekar en að stækka við sig sem gerir stærri eignir illseljanlegri. Við þetta bætist að erfiðara er að fjármagna kaup á stórum fasteignum um þessar mundir. Eins og kunnugt er hefur sá samdráttur sem orðið hefur í efnahagslífinu hefur komið verulega hart niður á íðbúðamarkaðnum. Þessi þróun er í takt við það sem við mátti búast enda hefur reynsla annarra landa leitt í ljós að fjármálakreppur hafa oftast í för með sér skarpa og djúpa lækkun íbúðaverðs. Reikna má með að íbúðaverð komi til með að gefa enn meira eftir og endurspegla væntingar um það hvort tveggja ástandið á framboðs- og eftirspurnarhlið markaðarins. Hin mikla uppsveifla undanfarinna ára á íbúðamarkaði hefur orðið til þess að nú þegar ládeyða hefur verið á þessum markaði situr eftir mikill fjöldi óseldra íbúða á framboðshlið markaðarins sem skapar frekari þrýsting til verðlækkunar. Við þetta ástand bætist mikið og vaxandi atvinnuleysi, svo og minnkandi ráðstöfunartekjur heimilanna.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira