Bakkabræður halda hlut sínum til 2012 20. janúar 2010 18:45
Eignarhaldsfélag Ágústs og Lýðs Guðmundssona mun halda áfram utan um 39,6 prósenta hlut í Bakkavör a.m.k til ársins 2012 vegna sérstakra ákvæða sem bræðurnir settu inn í lánasamninga félagsins eftir bankahrunið. Hins vegar mun allur hagnaður af hlut bræðranna fara til Exista, kröfuhöfum þess félags til hagsbóta.Í október 2008 eftir bankahrunið seldu bræðurnir 39,6 prósenta hlut Exista í Bakkavör til félagsins ELL 182 ehf., sem er í þeirra eigu og heitir B Food Invest í dag. Félag bræðranna keypti hlutinn á 8,4 milljarða króna með láni frá Exista á mjög góðum kjörum.Í krafti yfirráða sinna í Bakkavör létu bræðurnir síðan setja sérstök ákvæði í lánasamninga Bakkavarar í Lundúnum sem gera það að verkum að lánveitendur geta gjaldfellt lán til fyrirtækisins ef það verður breyting á eignarhaldi eða yfirstjórn þess. Kröfuhafar Bakkavarar sitja því uppi með bræðurnar hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Um er að ræða svokölluð „change of control" ákvæði í samningum vegna yfir hundruð milljarða króna sambankaláns Bakkavarar í Lundúnum.Hluti af endurskipulagningu Bakkavarar gerir ráð fyrir að eignarhlutur bræðranna í Bakkavör renni aftur inn í Exista en drög að samkomulagi liggja fyrir sem gera ráð fyrir að félagið verði yfirtekið af kröfuhöfum. Það sem hefur torveldað endurskipulagninguna eru ákvæðin sem sett voru inn í lánasamninga Bakkavarar í Lundúnum, því það hefði mjög slæmar afleiðingar ef lán til félagsins yrðu gjaldfelld.Bræðurnir verða því áfram eigendur 39,6 prósenta hlutafjár í Bakkavör og munu stýra félaginu áfram. Hins vegar mun hagnaður af eignarhlut þeirra, ef hann verður einhver, renna til kröfuhafa Exista. Og hafa bræðurnir skuldbundið sig til að taka ekki fjármagn út úr B Food Invest. Árið 2012 verður síðan hægt að endurfjármagna lán Bakkavarar í Lundúnum og stendur til að fjarlægja gjaldfelllingarákvæðin þá. Eftir það er gert ráð fyrir að hlutur bræðranna í Bakkavör renni aftur inn í Exista, sem verður síðan yfirtekið af kröfuhöfum, sem eru að stærstum hluta hinir sömu og kröfuhafar Bakkavarar.
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira