Notendur viðskiptavefsins Meniga 3.000 talsins 20. janúar 2010 15:08
Notendur viðskiptavefsins Meniga hjá Íslandsbanka eru nú tæplega 3.000 og þeim fjölgar hratt. Allir viðskiptavinir Íslandsbanka geta fengið aðgang að Meniga í gegnum Netbanka Íslandsbanka.Í tilkynningu segir að þann 13. janúar kynnti nýsköpunarfyrirtækið Meniga ehf., í samstarfi við Íslandsbanka, byltingakenndan heimilisfjármálavef sem tengdur er við Netbanka Íslandsbanka og ber nafnið Meniga.Vefurinn hjálpar notendum að öðlast yfirsýn yfir rekstur heimilisins og bendir á raunhæfar leiðir til sparnaðar sem eru sérsniðnar að neyslumynstri notenda. Meniga sækir og flokkar sjálfvirkt allar færslur af bankareikningum og greiðslukortum.Með einföldum hætti geta notendur fylgst með útgjöldum, tekjum og stöðu fjármála heimilisins á myndrænan og skýran hátt auk þess sem þeir geta borið neyslu sína saman við aðra notendur Meniga.„Mikil vinna liggur að baki Meniga og það er ótrúlega gefandi eftir þrotlaust starf í langan tíma að finna svo sterkt fyrir því að lausnin sé að hjálpa fólki svo um munar með heimilisfjármálin. Í glóðvolgri þjónustukönnun segjast tæplega 90% notenda munu nota Meniga reglulega í framtíðinni og sama hlutfall segist mæla með lausninni við aðra," segir Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga ehf í tilkynningunni. „Nokkrir erlendir bankar hafa þegar sýnt lausninni áhuga enda áhugasamir um heimilisfjármálalausnir sem spretta upp úr íslenskum aðstæðum eins og þær eru nú."„Undanfarið hefur Íslandsbanki einbeitt sér að lausnum og úrræðum fyrir viðskiptavini og hefur rutt brautina á því sviði. En um leið er mikilvægt að huga að forvörnum og fræðslu, t.d. með fjármálanámskeiðum og lausnum sem hjálpa viðskiptavinum að bæta fjárhag heimilisins," segir Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.„Meniga er einmitt slíkt verkfæri, en það veitir notendunum nauðsynlega yfirsýn yfir fjármálin og einfaldar heimilisbókhaldið verulega. Móttökurnar eru framar vonum hjá viðskiptavinum sem sýnir þörfina fyrir slíka lausn"
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Sjá meira