Arion banki segir kyrrstöðusamninga daglegt brauð Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. september 2010 13:25 Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskylda hans eiga fjárfestingarfélagið Gaum.
Arion banki hefur tímabundið fryst lán hjá hundruðum viðskiptavina sinna, einstaklingum sem fyrirtækjum, á undanförnum mánuðum, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Það er í samræmi við skýringar aðstandenda fjárfestingarfélagsins Gaums. Arion banki segir í tilkynningu að hann leiti allra leiða til að tryggja hagsmuni sína sem kröfuhafa í málefnum sem snerti fjárfestingarfélagið Gaum, sem og öðrum málum. Kyrrstöðusamningar séu í ákveðnum tilvikum leið til að verja slíka hagsmuni og þeir séu í eðli sínu tímabundin frysting lána meðan unnið sé að greiningu og úrlausn vanda viðkomandi fyrirtækis. Arion banki segist hafa tímabundið fryst lán hjá hundruðum viðskiptavina sinna, einstaklingum sem fyrirtækjum, að undanförnu. Í öllum þessum tilvikum vænti bankinn þess að eitthvað gerist áður en fresturinn sé úti sem verði til þess að bankinn sjái hagsmunum sínum betur borgið sem kröfuhafi. Kyrrstöðusamningar séu gerðir til nokkurra daga, vikna eða til lengri tíma og að fjöldi slíkra samninga hafi verið gerðir að undanförnu þar sem einn kröfuhafi eða fleiri saman gefa skuldurum færi á að endurskipuleggja fjármál sín. Umræða um að kyrrstöðusamningar feli sér sérkjör fyrir útvalda sé því villandi. Arion banki segir að aðgerðir í einstökum málum séu háðar mati hverju sinni með hagsmuni bankans að leiðarljósi. Og þó að einn kröfuhafi geri kyrrstöðusamning hafi það ekki áhrif á fullnustuaðgerðir annarra kröfuhafa. Þá hyggst bankinn óska eftir fundi með embætti umboðsmanns skuldara til að fara yfir þessi mál vegna ummæla umboðsmanns, en Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, greindi frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að hún hygðist óska eftir skýringum hjá bæði Landsbankanum og Arion banka vegna frétta af samningum sem fjárfestingarfélagið Gaumur og Björgólfur Thor Björgólfsson hefðu gert við innlenda lánardrottna sína. Fjárfestingarfélagið Gaumur er móðurfélag eignarhaldsfélagsins 1998 ehf. sem var móðurfélag Haga, en 1998 ehf. skuldar Arion banka á fimmta tug milljarða króna með gengisbreytingu krónunnar vegna yfirtöku á Högum frá árinu 2008 þegar félagið var selt út úr Baugi Group. Jón Ásgeir Jóhannesson, einn eigenda Gaums og 1998 ehf., er kvæntur Ingibjörgu Pálmadóttur, stærsta hluthafa 365 miðla sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.
Tengdar fréttir Auðmenn virðast njóta sérkjara í bönkunum Svo virðist sem auðmenn njóti sérkjara hjá íslenskum bankastofnunum. Umboðsmaður skuldara segir svokallaða kyrrstöðusamninga ekki þekkjast sem úrræði í almennum bankaviðskiptum. Engu að síður hafa Björgólfur Thor og eigendur fjárfestingarfélagsins Gaums fengið slíka samninga. 4. september 2010 18:33 Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Fleiri fréttir Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Sjá meira
Auðmenn virðast njóta sérkjara í bönkunum Svo virðist sem auðmenn njóti sérkjara hjá íslenskum bankastofnunum. Umboðsmaður skuldara segir svokallaða kyrrstöðusamninga ekki þekkjast sem úrræði í almennum bankaviðskiptum. Engu að síður hafa Björgólfur Thor og eigendur fjárfestingarfélagsins Gaums fengið slíka samninga. 4. september 2010 18:33