Stórt gap í kröfum Lýsingar 5. september 2010 19:25
Málflutningur fyrir hæstarétti hefst í vaxtamálinu svokallaða í fyrramálið. Stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna segir stórt gap í kröfum Lýsingar sem þurfi að fylla. Mikil óvissa hefur ríkt um þá vexti sem reiknaðir verða á gengistryggð lán eftir að gengistrygging var dæmd ólögmæt. Vaxtamálið snýst um einmitt það, en talið er að það muni hafa fordæmisgildi við uppgjör gengistryggðra lána. Lýsing stefndi þannig skuldara í vanskilum með gengistryggt lán, og voru kröfur fyrirtækisins misháar eftir þeim vöxtum sem reiknaðir eru á lánið, en kröfurnar eru í sex liðum. Héraðsdómur féllst á fjórðu varakröfu fyrirtækisins um að óverðtryggðir vextir seðlabankans yrðu reiknaðir á lánið og er krafa fyrirtækisins á skuldarann samkvæmt því tæpar 800 þúsund krónur. Skuldarar höfðu hins vegar vonast eftir að hinur lágu erlendu vextir fengju að halda sér. Það kemur svo í ljós á næstu vikum hvort Hæstiréttur samsinni Héraðsdómi. Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna gerir raunar athugasemd við að gap sé í kröfugerðinni, þar sem vægasta krafa Lýsingar um v hljóði upp á um 120 þúsund krónur, en allar hinar upp á meira en 790 þúsund, allt eftir mismunandi vaxtakjörum. Marinó segir önnur vaxtakjör koma til greina, en hæstiréttur getur dæmt að álitum, það er dæmt aðra vexti á lánin en kröfugerðin leggur til. Marinó segir fyrirtækið til dæmis geta látið samningsvexti gilda og síðan beitt endurskoðunarákvæðum til að hækka þá smátt og smátt. Þá gætu skaðabótavextir samkvæmt lögum eða samkvæmt Seðlabanka Íslands verið reiknaðir á lánið, eða aðrir vextir seðlabankans með þaki.
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Innlent Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Neytendur Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Viðskipti innlent Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Sjá meira