Fiskvinnsla HG lokuð í 3 vikur vegna strandveiða 26. apríl 2010 13:08 Samkvæmt frumvarpi sjávarútvegsráðherra, sem nú er til 2. umræðu á Alþingi, verður heimilt að veiða allt að 6.000 tonn af óslægðum bolfiski á strandveiðitímabilinu í sumar.
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf (HG) segir að loka þurfi fiskvinnslu fyrirtækisins í þrjár vikur í sumar vegna strandveiðanna. Hann segir það „nöturlegt" í viðtali við Fiskifréttir að verið sé að færa atvinnu frá þeim sem hafa lífsviðurværi sitt af sjávarútvegi til „hobbýkarla" eins og hann orðar það.Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að samkvæmt frumvarpi sjávarútvegsráðherra, sem nú er til 2. umræðu á Alþingi, verður heimilt að veiða allt að 6.000 tonn af óslægðum bolfiski á strandveiðitímabilinu í sumar. Í fyrra var heimilt að veiða alls 3.995 tonn. Uppistaðan í veiðunum í fyrra var þorskur og sem dæmi má nefna að 72 strandveiðibátar lönduðu þá hreinum þorskafla úr 777 róðrum.„Með því að heimila að veiða allt að 6 þúsund tonn af þorski við strandveiðar er verið að rýra kvótann um 4%. Fyrir okkar fyrirtæki þýðir það í kringum 150 tonna skerðingu. Við höfum gert togarann Pál Pálsson ÍS út í 37 ár. Hann hefur skilað að meðaltali um 50 tonnum á viku inn í fiskvinnsluhús okkar," segir Einar Valur í viðtalinu við Fiskifréttir.„Ef ráðherra ætlar að taka 4% af veiðiheimildum okkar í þorski og færa leigubílstjórum og bankamönnum þýðir það um þriggja vikna stopp í fiskvinnslunni. Það er verið að færa veiðar og vinnslu frá fólki sem hefur lífsviðurværi sitt af sjávarútvegi allt árið yfir til hobbýkarla og það finnst mér vera nöturlegt."
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira