Höfundur innstæðutrygginga: Ekki til krafa um að borga í tilskipuninni 10. janúar 2010 12:54
Þingmaður Evrópuþingsins, og einn af höfundum tilskipunar um innstæðutrygginga sem var samþykkt árið 1994, Alain Lipietz, segir kerfið gallað og lagalegur grundvöllur Breta og Hollendinga sé veikur. Í sama streng tekur Michael Hudson, hagfræðingur frá Bandaríkjunum. Það var Egill Helgason sem ræddi við Michael Hudson og Lipietz, með honum var Eva Joly en þau voru stödd í París þegar viðtalið var tekið. Lipietz segir að krafan um að Ísland greiði sé ekki að finna í tilskipun Evrópusambandsins líkt og haldið hafi verið fram. Hann segir ábyrgðina einnig liggja hjá gistiríkjunum, sem voru Holland og Bretland. Alain er fulltrúi græningja á Evrópuþinginu en hann segir Breta vera að reyna breyta Íslandi í nýlendu sem verði neydd til þess að borga. Bandaríski hagfræðingurinn Michael Hudson, var einnig í viðtali í þættinu en þar sagði hann Ísland eiga mjög sterka lagalega stöðu og tók því undir með Lipietz. Hann segir einnig alvarlegt mál að Breta hafi hótað efnahagslegu stríði gegn Íslandi og sýni vinnubrögð Bretana og viðleitni þeirra við að knésetja landið. hann líkir svo íslandi við Bernie Maddoff og tekur sem dæmi þegar hann fór á hausinn og fjölmargir töpuðu peningum í kjölfarið. Þá hafi ekki verið til nægur peningur til þess að greiða öllum þeim sem töpuðu. Því var þeim úthlutað pening hlutfallslega við tap þeirra til þess að bæta skaðann. það hafi Gordon Brown einnig átt að gera en gerði ekki. Þetta, að mati Michaels, voru mistök Browns. Hann bætti svo við að ekkert ríki fremji efnahagslegt sjálfsmorð sem hann telur Icesave samningana vera. Öll voru þau sammála um að erlendir fjölmiðlar eru að snúast á sveif með Íslendingum. Þar er mikilvægast að Financial Times er okkur hliðhollt en það er eitt víðlesnasta viðskiptablað veraldar.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Sjá meira