Kortavelta: Mesta aukning frá hruni 13. september 2010 11:45
Kreditkortavelta nam 26,9 milljörðum króna í ágúst og jókst um 1,4 milljarða frá fyrri mánuði. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að borið saman við ágúst í fyrra nemi aukningin 13,6 prósentum í krónum talið en að raungildi jókst kreditkortavelta um 10,9%. „Þetta er mesta aukning sem orðið hefur í kreditkortaveltu að raungildi frá hruni og er mikill viðsnúningur frá því sem áður var," segir ennfremur og bent á til samanburðar að kreditkortaveltan dróst saman um um rétt tæp 30 prósent að raungildi á milli ára í ágúst í fyrra. „Kreditkortavelta landsmanna virðist nú því vera að taka við sér á nýjan leik eftir að hafa tekið bakslag á öðrum ársfjórðungi. Eins og kunnugt er gefur kortavelta góða vísbendingu um þróun einkaneyslu og á öðrum ársfjórðungi dróst einkaneysla saman um 2,1% frá sama fjórðungi fyrra árs sem benti til þess að landsmenn sýndu enn mikið aðhald í heimilisbókhaldinu og að skýr viðsnúningur væri enn ekki kominn fram." Þá er bent á að debetkortavelta í ágústmániði hafi numið rétt rúmum 34 milljörðum króna sem er líka aukning, upp á 2,4 prósent frá fyrri mánuði í krónum talið. „Ef litið er á raunbreytingu kredit- og debetkorta í innlendum búðum var 5,9% aukning í ágúst samanborið við 16% samdrátt á sama tíma fyrir ári. Þróun þessarar stærðar gefur því einnig vísbendingu um að einkaneysla sé nú að taka við sér á þriðja ársfjórðungi og hafi náð botni."
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fleiri fréttir ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Sjá meira