Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður heldur vöxtum óbreyttum

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir að vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var í gær ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,85%

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.

Í útboðinu í gær bárust gild tilboð að nafnvirði 10,3 milljarðar króna. Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf:

HFF150224 að nafnvirði 1,810 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,77%

HFF150434 að nafnvirði 2,170 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,79%

HFF150644 að nafnvirði 3,160 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,77%

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 3,78% og 3,79% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 30. apríl 2010.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×