Nýherji: Heildartekjur svipaðar og í fyrra en heildartap 130 milljónir 28. apríl 2010 17:26 Þórður Sverrison forstjóri: Stórir samningar Applicon A/S bættu rekstrarafkomu erlendu starfseminnar í lok ársfjórðungsins.
Heildartekjur Nýherja samstæðunnar námu 3.509 milljónum króna og eru svipaðar og á fyrsta ársfjórðungi 2009 að því er fram kemur í uppgjöri félagsins sem birt var í dag. EBITDA í ársfjórðungnum nam 35 milljónum króna, en heildartap er 130 milljónir króna. Jákvæð EBITDA er af innlendum rekstri, en erlend starfsemi er í járnum að því er fram kemur í tilkynningu. „Applicon A/S gerði mikilvægan þriggja ára samning að fjárhæð 1,8 milljarða króna, sem tryggir góða afkomu af erlendri starfsemi á árinu. Tap var á rekstri Applicon að upphæð 32 mkr í fyrsta ársfjórðungi, en útlit fyrir ágætan hagnað út árið," segir einnig auk þess sem fram kemur að fjárhagsstaða félagsins verður styrkt á næstunni m.a. með hlutafjáraukningu og sölu eigna. „Rekstrartekjur af innlendri starfsemi Nýherja jukust um 3% frá fyrsta ársfjórðungi í fyrra og EBITDA batnaði um nær 65 milljónir. Vörusala hefur vaxið um nær fjórðung frá sama ársfjórðungi í fyrra ári og jafnvægi er að nást í hugbúnaðarráðgjöf og þjónustu, segir Þórður Sverrisson, forstjóri. Samningar Applicon bættu rekstrarafkomuna „Stórir samningar Applicon A/S bættu rekstrarafkomu erlendu starfseminnar í lok ársfjórðungsins. Halli af rekstri þess félags síðustu tvo ársfjórðunga er samtals 125 mkr, en samningarnir treysta góða afkomu næstu misseri," segir Þórður einnig. Að hans sögn eru horfur um rekstrarafkomu félagsins nú jákvæðar, í kjölfar umfangsmikilla aðgerða sem ráðist hefur verið í hérlendis til að lækka kostnað, laga rekstur að markaðsaðstæðum og ná mikilvægum samningum hérlendis og erlendis. „Meginverkefni Nýherja næstu mánuðina er að tryggja fjárhagslega stöðu félagsins og liggja nú fyrir tillögur stjórnar til viðskiptabanka félagsins um ráðstafanir til að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu þess með m.a. hlutafjáraukningu og sölu eigna."
Mest lesið „Ég hef aldrei spilað golf“ Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira