Viðskipti innlent

Gagnaver samþykkt úr iðnaðarnefnd - samningstími styttur um helming

Iðnaðarnefnd Alþingis samþykkti í morgun frumvarpið um gagnaver á Suðurnesjum með breytingum. Nefndin leggur til að gildistími samningsins verði styttur um helming, þannig að samningurinn gildi til 10 ára en ekki 20 ára eins og kveðið var á um í frumvarpinu. Þetta kom fram á bloggi Skúla Helgasonar, formanns iðnaðarnefndar á pressan.is.

Þar segir hann að það séu tvær ástæður fyrir styttingu samningsins. Annars vegar vill nefndin að gætt sé samræmis við nýtt frumvarp iðnaðarráðherra um ívilnanir vegna fjárfestinga, en þar er gert ráð fyrir að samningar um ívilnanir í framtíðinni verði til tíu ára.

Harðvítug umræða fór af stað þegar í ljós kom að Björgólfur Thor Björgólfsson ætti tæplega 22 prósent í fyrirtækinu sem stendur á bak við gagnaverið. En Björgólfur var einn aðaleiganda Landsbankans fyrir hrun.

Skúli segir að það hafi verið mikil umræða í nefndinni um þátttöku Novators, fyrirtækis Björgólfs Thors Björgólfssonar í verkefninu.

Skúli áréttar hinsvegar að það liggi hins vegar fyrir að stjórnvöld geti ekki krafist þess að Novator gangi út úr verkefninu. Það myndi að mati Skúla brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og í öðru lagi myndi það kippa fótunum undan verkefninu því fyrir liggur samkomulag við nýjan hluthafa, breska góðgerðarsjóðinn Wellcome Trust, þess efnis að enginn eldri hluthafa, þar með talið Novator, hverfi frá verkefninu næstu 24 mánuði hið minnsta.

Að lokum þá mun Novator sem hluthafi ekki njóta neins fjárhagslegs ávinnings af fjárfestingarsamningnum, heldur afsali þeim réttindum í hendur ríkinu og þar með þjóðinni.

Verðmæti fjárfestingarsamningsins er áætlað tæpar 500 milljónir króna og má því ætla að hlutur Novators væri allt að 100 milljónir króna.

Skúli segir að með samkomulaginu fellst Novator á að afsala sér þeim hlut til ríkisins.

Því til viðbótar er kveðið á um að ríkið njóti góðs af því ef eignarhlutur Novators hækkar í verði í framtíðinni, þ.e. greiðslan til ríkisins hækkar þá samhliða.

Þá má nefna að eigandi Novator hefur skuldbundið sig til að verja mögulegum söluhagnaði vegna verkefnisins í framtíðinni til frekari fjárfestinga í íslensku atvinnulífi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×