Deutsche Bank gæti létt á erlendum skuldum Íslands um 10% 9. september 2010 07:13
Leiða má góðar líkur að því að Deutsche Bank sé að létta á erlendri skuldastöðu íslenska þjóðarbúsins um 10% eða 300 milljarða kr. Eins og fram hefur komið í fréttum Stöðvar 2 og á visir.is hefur Deutsche Bank sótt um leyfi til framkvæmdanefndar Evrópusambandsins til að yfirtaka Actavis. Fari svo að Deutsche Bank fái þetta leyfi, sem allt bendir til, gæti það létt töluvert á erlendri skuldastöðu íslenska þjóðarbúsins. Erlendar skuldir þjóðarbúsins nema nú rétt rúmum 3.000 milljörðum króna ef frá eru taldir bankarnir sem eru í slitameðferð. Fram kom í fréttum í fyrra að skuldir Actavis næmu 1.000 milljörðum króna af erlendum skuldum þjóðarbúsins. Sú tala er komin niður í rúma 800 milljarða króna ef tekið er mið af gengisþróuninni. Ekki fæst uppgefið hjá Seðlabankanum hversu hátt Actavis er metið í erlendum eignum þjóðarbúsins en samkvæmt fréttum á Reuters í vetur var Actavis metið á ca. 3,5 milljarða evra eða rúmlega 500 milljarða króna. Með yfirtöku Deutsche Bank myndi erlenda skuldastaðan því batna um 300 milljarða króna eða 10% af heildinni. Erlendar eignir þjóðarbúsins nema tæpum 2.500 milljörðum kr. og þær myndu lækka niður í tæpa 2.000 milljarða kr. við yfirtöku Deutsche Bank á Actavis. Munurinn sem er á erlendum eignum og skuldum þjóðarbúsins myndi því minnka töluvert við yfirtökuna. Annað er að við yfirtökuna myndu erlendar skuldir þjóðarbúsins sem hlutfall af landsframleiðslu fara töluvert undir 200% en oft hefur verið talað um að erlendar skuldir umfram það mark séu ósjálfbærar. Raunar færu erlendu skuldirnar niður í um 150% af landsframleiðslu miðað við fyrrgreindar forsendur.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira