Ísland fellur um sex sæti í samkeppnisvísitölu 9. september 2010 06:57
Ísland er nú í 31. sæti í samkeppnisvísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) 2010-2011 en var í 26. sæti fyrir ári síðan. Samkeppnishæfnivísitalan byggir á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífinu. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsaðili Alþjóðaefnahagsráðsins á Íslandi og framkvæmdaraðili könnunar. Í tilkynningu segir að vísitala Alþjóðaefnahagsráðsins um samkeppnishæfni er virtur mælikvarði á efnahagslíf þjóða víða um heim. Vísitalan er víðtæk og endurspeglar þá þætti sem segja til um framleiðni þjóða og vaxtarmöguleika. Sviss heldur efsta sætinu milli ára sem samkeppnishæfasta landið en síðan koma Svíþjóð og Singapúr. Sérstaka athygli vekur að Bandaríkin láta undan og eru núna í fjórða sæti listans.+ Síðastliðin tvö ár hefur Ísland fallið um ellefu sæti eða úr því að vera í 20. sæti árið 2008 í 31. sæti árið 2010. Alls taka 139 þjóðríki þátt í könnun Alþjóðaefnahagsráðsins og er samkeppnihæfni þjóða metin út frá styrk eða veikleika í tólf mismunandi þáttum. Í skýrslu ráðsins The Global Competitiveness Report 2010-2011, sem kemur út í dag, er meðal annars fjallað um stöðu Íslands. Skýrsluhöfundar segja að meginorsök að baki falli Íslands sé áframhaldandi hnignun efnahagsumhverfisins (úr 56. sæti í 138. sæti) og veikari fjármálamarkaður (úr 20. sæti í 122. sæti). Þrátt fyrir þessar niðurstöður þætti þá stendur Ísland mjög vel í öðrum sterkum samkeppnisþáttum sem líklegir eru til að færa landið hraðar í átt að stöðugra og samkeppnishæfara efnahagskerfi. Þar má nefna samkeppnishæfni á lykilsviðum eins og menntun, þróun, tækni og nýsköpun. Menntakerfi Íslands er í fremstu röð á öllum stigum (4. sæti í menntun heilbrigðisstétta og grunnskólamenntun og 6. sæti í menntun á háskólastigi og fagþjálfun), atvinnulífið er framsækið (17. sæti) og aðlögunarhæfni að tækninýjungum sem auka framleiðslugetu mikil (4. sæti). Sveigjanlegur vinnumarkaður (7. sæti) kemur atvinnulífinu ennfremur til góða sem og sterkir innviðir samfélagsins (12. sæti). Í niðurstöðunum kemur meðal annars fram að Kínverska alþýðulýðveldið heldur áfram að klífa upp listann og greinilegar eru framfarir í mörgum öðrum ríkjum í Asíu. Þýskaland færist upp um tvö sæti, í það fimmta, og er efst evrulandanna. Um fall Bandaríkjanna segja skýrsluhöfundar að við ójafnvægi í efnahagskerfinu hafi bæði opinberar stofnanir og stofnanir í einkageiranum veikst, auk þess sem menn hafa haft viðvarandi áhyggjur af ástandi fjármálamarkaðanna. Norrænu ríkin halda góðri stöðu sinni á listanum, Svíþjóð, Finnland og Danmörk eru meðal tíu efstu og Noregur vermir 14. sætið.
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Gera fjölmargar breytingar á kílómetragjaldinu Neytendur Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira