Hætt við bankakaup eftir hæstaréttardóm 13. ágúst 2010 06:30 Áhugi erlendra fjárfesta á kaupum á Íslandsbanka dvínaði eftir gengisdóm Hæstaréttar, segir formaður skilanefndar Glitnis.Fréttablaðið/anton
Erlendir fjárfestar misstu áhuga á kaupum á tæpum þrjátíu prósenta hlut í Íslandsbanka eftir að Hæstiréttur dæmdi erlend gengislán ólögmæt í júní. Þeir höfðu sett sig í samband við svissneska risabankann UBS, sem er með hlut skilanefndar Glitnis í bankanum í söluferli, og lýst yfir áhuga á honum. „Þetta var komið í ágætan farveg en var sjálfhætt eftir gengisdóminn. Eftir hann hefur ekkert gengið,“ segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. Hann á jafnframt sæti í stjórn Íslandsbanka í krafti eignarhlutar kröfuhafa. Árni bætir við að óstöðugt fjármálaumhverfi hér hafi fælt fjárfestana frá og verði að byrja frá grunni. Hann vill ekki tjá sig um fjárfestana að öðru leyti. Íslandsbanki er að mestu í eigu erlendra kröfuhafa en félag þeirra, ISB Holding, fer með 95 prósenta hlut. Ríkið á fimm prósentin sem upp á vantar. Fram kom á kynningarfundi skilanefndar í febrúarlok að verðmæti 95 prósenta hlutarins næmi hundrað milljörðum. Nýtt mat er væntanlegt í september. Fréttablaðið greindi frá því í mars að þýskir kröfuhafar Glitnis hefðu sett sig upp á móti yfirtöku skilanefndar á 95 prósenta hlut í Íslandsbanka í fyrrahaust og vilji ekki eiga hann til frambúðar. Af þeim sökum setti skilanefnd hlut sinn í bankanum í söluferli snemma á árinu. UBS-bankinn er ráðgjafi við söluna og stefnir skilanefnd að því að nýir eigendur komi að Íslandsbanka á næstu þremur til fimm árum. Söluandvirðið fer upp í kröfur í þrotabú Glitnis. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins setja erlendir fjárfestar fyrir sig gjaldeyrishöft, eða vilja að búið verði að koma skikki á gengismál með einhverjum hætti eigi þeir að hafa áhuga á að festa fé sitt hér á landi til langframa. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir þetta ekki koma sér á óvart. Fjárfestar, íslenskir sem erlendir, séu hikandi, kippi jafnvel að sér höndum þegar vinnubrögð stjórnvalda séu jafn tilviljunarkennd og nú og viðhorf neikvætt í garð erlendrar fjárfestingar. „Fjárfestar vilja ekki láta koma aftan að sér en það hefur gerst of oft á síðustu mánuðum og misserum. Þar kemur ýmislegt til, svo sem umræddur gengislánadómur, nýlegar hugmyndir um þjóðvæðingu í orkugeiranum eða breytingar á lögum um yfirtökuskyldu sem eru í raun afturvirkar,“ segir hann.- jab
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira