Hækkun verðtryggðra lána ekki minni síðan 2003 26. nóvember 2010 08:16
Miðað við verðbólgumælinguna nú vegur hækkun á höfuðstól verðtryggðra lána vegna verðbóta 2,6% yfir árið 2010. Hefur hækkunin á þann mælikvarða ekki verið minni frá því árið 2003. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um minnkun verðbólgu niður í 2,6% í nóvember. Vísitala neysluverðs í nóvember gildir til verðtryggingar 1. janúar á næsta ári. Í Morgunkorninu segir að sem dæmi má nefna að höfuðstóll 10 milljóna kr. verðtryggðs láns hækkar á yfirstandandi ári um 260 þúsund kr., ef horft er fram hjá afborgunum af höfuðstólnum. Í fyrra nam hækkun á samsvarandi láni hins vegar 860 þúsund kr. og yfir árið 2008 hækkaði slíkt lán um 1.7 milljónir kr. Hjöðnun verðbólgunnar er því harla góðar fréttir fyrir skuldsett heimili, og góðar líkur eru á að höfuðstóll verðtryggðra lána muni áfram hækka hóflega fram eftir næsta ári. Seðlabankinn mun væntanlega líkt og fleiri gleðjast yfir mælingunni, enda er verðbólga nú hin minnsta síðan vorið 2004 og liggur við 2,5% markmið bankans. Niðurstaðan eykur því líkur á vaxtalækkun þann 8. desember næstkomandi, enda nefndi peningastefnunefnd bankans hjaðnandi verðbólgu sem forsendu fyrir því að lækka vexti frekar. „Við teljum að áfram verði verðbólguþrýstingur hóflegur og líklegt er að verðbólga muni sveiflast um markmið Seðlabankans langt fram eftir næsta ári, að því gefnu að krónan gefi ekki verulega eftir að nýju og að þeirri kjarasamningalotu sem nú er verið að ýta úr vör ljúki með tiltölulega hóflegri hækkun launa. Spáum við 2,3% hækkun á vísitölu neysluverðs yfir næsta ár," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira