Tekist hefur að slá gólfi undir gengið, segir seðlabankastjóri 29. september 2010 15:41 „
Það hefur margt þróast til réttrar áttar í íslensku efnahagslífi á undanförnum mánuðum. Tekist hefur að slá gólfi undir gengið og það sem af er ári hefur viðskiptavegið gengi styrkst um rúm 12% en gagnvart evru er styrkingin tæp 17%, og það án nokkurra stuðningsinngripa Seðlabankans á tímabilinu." Þetta sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva í vikunni. Ræðan er birt á heimasíðu Seðlabankans. Í ræðu sinni ræddi Már um áhyggjur um að íslenska ríkið muni ekki ráða við miklar erlendar afborganir á árunum 2011 og 2012 hafa horfið með vaxandi gjaldeyrisforða. Þrátt fyrir miklar áhyggjur markaða af skuldamálum ýmissa minni Evrópuríkja, hækkandi skuldatryggingarálag á þau sömu ríki og tilhneigingu markaða til hjarðhegðunar og smitáhrifa hefur skuldatryggingarálag Íslands heldur lækkað og er nú komið töluvert niður fyrir álagið fyrir þau lönd Evrópu sem mest hafa verið í sviðsljósinu vegna skuldavanda að undanförnu. „En hagvöxturinn hefur látið á sér standa og er Ísland í því efni langt á eftir flestum öðrum löndum þar sem hagvöxtur hóf að vaxa á seinni hluta síðasta árs. Það er að vísu mjög erfitt að lesa í laufin um þessar mundir þar sem þau þeytast til og frá í sviptivindum eftirkreppunnar. Þannig eru ársfjórðungslegar landsframleiðslutölur og ýmsar aðrar hagtölur mjög sveiflukenndar og breytast verulega frá einni endurskoðun til annarrar og er þetta alþjóðlegt vandamál um þessar mundir," segir Már. „Til að hagvöxturinn taki virkilega við sér þarf fjárfesting að hefjast úr þeim sögulegu lægðum sem hún er nú í, en hlutfall fjármunamyndunar af landsframleiðslu verður á þessu ári rétt rúm 14% sem er lægsta fjárfestingarhlutfall frá lokum seinna stríðs. Það er mitt mat að þó að lækkun raunvaxta muni að öðru óbreyttu örva fjárfestingu skipta aðrir þættir mun meira máli svo sem áhættufælni í framhaldi af fjármálakreppu, laskaðir efnahagsreikningar fyrirtækja, óvissa um eftirspurn og rekstrarumhverfi framtíðarinnar og verulega skertur aðgangur að erlendu lánsfé." Már segir að við munum auðvitað ekki komast langt með afnám hafta eða opnun erlendra lánsfjármarkaða fyrir ríkið og íslensk fyrirtæki ef taldar eru líkur á því að íslenska ríkið muni ekki geta staðið við erlendar lánaskuldbindingar sínar. „Sem betur fer verður staðan sú eftir næstu endurskoðun hjá AGS að á því mun ekki leika neinn vafi. Forði nú er 1,7 milljarðar evra að frádregnum skammtímaskuldbindingum. Á næstu mánuðum munu bætast við 453 milljónir evra vegna viðskipta sem tengjast krónueignum Avens, 255 milljónir evra vegna sölunnar á FIH-bankanum í Danmörku og 620 milljónir evra í framhaldi af þriðju endurskoðun samstarfsáætlunarinnar með AGS. Samtals verður forðinn þá rúmir 3 milljarðar evra. Til samanburðar var endurgreiðsla vaxta og afborgana tveggja skuldabréfaflokka ríkissjóðs á næstu tveimur árum 1,5 milljarðar evra og þar af hafa um 400 milljónir evra þegar verið keyptar til baka á niðursettu verði," segir Már.
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira