Kaupir hlut Orkuveitu Húsavíkur í Þeystareykjum 29. september 2010 11:58
Landsvirkjun og Orkuveita Húsavíkur ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur ehf. í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. Í tilkynningu segir að eftir kaupin á Landsvirkjun tæplega 93% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur (3,2%) og Þingeyjarsveit (4,09%). Fyrir hlutinn eru greiddar tæpar 14 milljónir bandaríkjadollara, eða tæpum 1,6 milljörðum kr.. Greitt er í áföngum þar til orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf. Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í rannsóknum og öðrum verkefnum því tengdu. Boraðar hafa verið sex djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands. Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu raforkuvinnslu á Íslandi. Orkuveita Húsavíkur ehf. hefur með þátttöku sinni í Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á svæðinu og mun sem minni hluthafi halda þeirri uppbyggingu áfram. Þessi kaup gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins. Samhliða kaupunum hafa Norðurþing og Landsvirkjun gert með sér samstafssamning um nýtingu raforku á umráðasvæði Þeistareykja ehf. Eru aðilar sammála um að stuðlað verði að því sem kostur er að áhugasamir orkukaupendur hefji orkufreka starfsemi í Þingeyjarsýslum og orkukaup frá Þeistareykjum ehf. og Landsvirkjun eftir atvikum.
Mest lesið Heinemann ræddi nýja fríhöfn á blaðamannafundi Viðskipti innlent Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Heinemann ræddi nýja fríhöfn á blaðamannafundi Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Sjá meira