Leyfir yfirtöku Sparisjóðabankans á S. Helgasyni ehf. 29. september 2010 08:24
Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til þess að aðhafast frekar vegna yfirtöku Sparisjóðabanka Íslands (SPB) á S. Helgasyni ehf. Fjallað er um málið á vefsíðu eftirlitsins. Þar segir að Sparisjóðabankinn sé fjármálafyrirtæki sem starfar á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki. Bankinn sérhæfði sig í heildsöluþjónustu við sparisjóði í landinu, auk þess að stunda lánaviðskipti við valda viðskiptavini. Fjármálaeftirlitið ákvað þann 21. mars 2009 að taka yfir vald hluthafafundar SPB. Þá ákvað Fjármálaeftirlitið 27. mars að skipa bankanum skilanefnd sem fer með öll málefni SPB og hefur umsjón með allri meðferð eigna hans og skulda. S. Helgason starfar á innlendum steinsmiðjumarkaði skv. samrunaskrá og sérhæfir sig í rekstri á steinsmiðju til almennra steinsmiðjuverka. Samkvæmt samrunaskrá nær þjónusta S. Helgasonar þannig til smíða á flísum, borðplötum, legsteinum, vatnsbrettum og annarra hluta. Í samkeppnislögum segir að telji Samkeppniseftirlitið að samruni hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða eins eða fleiri fyrirtækja verði til eða slík staða styrkist, eða verði að öðru leyti til þess að samkeppni raskist með umtalsverðum hætti geti stofnunin ógilt samruna eða sett honum skilyrði. „Það er mat Samkeppniseftirlitsins að samruni þessa máls raski ekki samkeppni skv. þeim viðmiðunum sem felast í 17. gr. c samkeppnislaga. Við rannsókn málsins var m.a. tekið til athugunar hvort samkeppni kunni að verða raskað með eignarhaldi Sparisjóðabanka Íslands," segir í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. „Við það mat var m.a. horft til þess að SPB er ekki umsvifamikill í endurskipulagningu fyrirtækja auk þess sem hann sinnir ekki lengur almennri viðskiptabankaþjónustu né á eignarhluti í fyrirtækum sem starfa á sama markaði eða tengdum mörkuðum."
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira