Telur að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist fyrir áramót 29. september 2010 07:44
Greining Arion Banka telur að verðbólga verði komin undir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans fyrir árslok. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Í Markaðspunktunum er fjallað um nýja verðbólgumælingu Hagstofunnar en engin verðlagshækkun mældist milli mánaða í september og lækkaði því tólf mánaða verðbólga í 3,7% samanborið við 4,5% í ágúst. Verðbólgan reyndist því undir væntingum en spár helstu greiningaraðila lágu á bilinu 0,3-0,4%. Greiningardeild Arion banka spáði 0,3% verðbólgu. „Margir ólíkir undirliðir neysluverðsvísitölunnar lækkuðu að þessu sinni sem sýnir að ekki er um neina tilviljun að ræða, heldur eru styrking krónunnar og takmörkuð eftirspurn að skila sér inn í verðlagið. Við teljum að sú þróun muni halda áfram næstu mánuði þótt gjaldskrárhækkun Orkuveitunnar í nóvember næstkomandi setji að sjálfsögðu nokkurt strik í reikninginn," segir í Markaðspunktunum. „Við teljum engu að síður að verðbólga verði komin undir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans fyrir árslok. Jafnframt gerum við ráð fyrir að verðbólga verði undir markmiði á árinu 2011." Greiningin gerir ráð fyrir 0,8% hækkun verðlags fram til ársloka og vegur þar þyngst væntanleg hækkun Orkuveitunnar í nóvember n.k. eða um 0,39% til hækkunar verðlags. Af öðrum þáttum má nefna að matvöruverð gæti skriðið uppávið næstu mánuði, m.a. vegna hækkana á ýmsum hrávörum.„Við gerum aftur á móti ráð fyrir fremur stöðugu húsnæðis- og eldsneytisverði en jafnan er þó erfitt að spá fyrir um þessa liði. Það sem helst mun spyrna gegn verðbólgu næstu mánaða er sú gengisstyrking sem orðið hefur á krónunni síðustu misseri," segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira