Stjórn VBS hafði ekki heimild ráðuneytis til lánabreytinga 29. september 2010 10:20
Stjórnendur VBS fjárfestingarbanka leituðu ekki eftir samþykki hjá fjármálaráðuneytinu um form- eða skilmálabreytingar á veittum lánum félagsins. Hvorki á lánum veittum til starfsmanna né til annara viðskiptamanna félagsins. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur þingsmanns Framsóknarflokki á Alþingi um málefni VBS fjárfestingarbanka en ríkissjóður veitti fyrirtækinu 26 milljarða kr. lán vegna veðskulda í mars 2009. Eygló spurði m.a. hvort stjórnendur VBS fjárfestingarbanka hafi leitað samþykkis ráðuneytisins og/eða Fjármálaeftirlitsins fyrir lengingu kúlulána sem þeir voru með hjá bankanum til ársins 2017? Samrýmist sú framlenging skilyrðum sem ráðuneytið setti fyrirtækinu við gerð lánasamnings vegna veðskulda við Seðlabankann? Í svari ráðherra segir: „Í skilyrðum sem veitt voru fyrir láni ríkisins má lesa að lánveiting til venslaðra aðila skuli ekki aukin og að aukning útlána er ekki bönnuð. Það getur verið skilgreiningaratriði hvort lenging lána sé í eðli sínu nýtt lán eða ekki. Ef hún er metin sem nýtt lán er mögulega brotið gegn 6. gr. lánasamningsins (hann má finna á heimasíðu fjármálaráðuneytisins) þar sem kveðið er á um að „vöxtur útlánasafns leiði ekki til skerts endurgreiðsluhæfis lántaka" og þá einnig 9. gr. þar sem segir „fyrirgreiðslum við venslaða aðila skal ætíð stillt í hóf og hagsmuna ríkissjóðs gætt í hvívetna við slíkar fyrirgreiðslur". Fjármálaráðuneytið hefur enga vitneskju um hvort og þá hvernig staðið var að fyrirgreiðslu til starfsmanna á umræddu tímabili og er því ekki í stakk búið til að meta hvort hagsmunum lánveitanda hafi ekki verið gætt í hvívetna." Stjórn VBS fjárfestingarbanka óskaði eftir því við Fjármálaeftirlitið 3. mars 2010 að skipuð yrði bráðabirgðastjórn yfir bankann. Í því fólst að þáverandi stjórn fór frá og bráðabirgðastjórn tók yfir hlutverk stjórnar. VBS fjárfestingarbanki hf. var svo tekinn til slitameðferðar 9. apríl 2010 með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira