Leigusamningum fjölgaði í maí 9. júní 2010 11:08
Í maí síðastliðnum var samtals 705 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst. Þetta er nokkur fjölgun frá fyrri mánuði þegar 625 samningum var þinglýst. Þá er þetta nákvæmlega sami fjöldi leigusamninga og þinglýst var í sama mánuði fyrir ári síðan samkvæmt upplýsingum sem Fasteignaskrár Íslands hefur birt.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að heldur virðist vera að draga úr þeirri miklu sókn sem varð í leiguhúsnæði í kjölfar bankahrunsins. Fyrstu 5 mánuði þessa árs var til að mynda samtals 3.765 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst sem er fækkun um tæplega 5% frá sama tímabili fyrir ári síðan.Engu að síður er þó enn um gríðarlega mikla sókn í leiguhúsnæði miðað við það sem áður var. Þannig var t.d. aðeins 5.000 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á ári að meðaltali frá árinu 2005 og til og með 2007.Ekki þarf að koma á óvart að sókn í leiguhúsnæði sé enn mikil enda eru aðstæður á íbúðamarkaði enn með því sniði að mörgum þykir fýsilegt að leigja enn um sinn frekar en að leggja í íbúðarkaup.Í fyrsta lagi er enn útlit fyrir að íbúðaverð muni enn lækka áður en botninum verði náð, en Seðlabankinn gerir til að mynda ráð fyrir að íbúðaverð muni lækka út næsta ár.Í öðru lagi er enn mikil óvissa um hvernig framboð og eftirspurn þróast á þessum markaði þar sem endurskipulagning á skuldum heimilanna er enn í vinnslu. Þessi óvissa sem hefur skapast um hvaða úrræði séu í boði og hvort meira sé í vændum hefur gert það að verkum að margir halda að sér höndum og bíða. Við þetta bætist svo að spurn eftir húsnæði til eignar er haldið niðri af atvinnuleysi og almennri óvissu í hagkerfinu.Loks má benda á að lánskjör á íbúðalánum hafa ekki fylgt lækkandi verðtryggðum langtímavöxtum á markaði undanfarið þar sem Íbúðalánasjóður hefur hækkað vaxtaálag á fjármögnun sína verulega það sem af er ári. Í árferði sem þessu er því eðlilegt að margir sem áður hefðu íhugað íbúðakaup leiti á leigumarkaðinn.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira