Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa eykst lítillega milli mánaða

Vísitala kaupmáttar launa í nóvember 2010 er 107,3 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,0%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að launavísitalan í nóvember 2010 er 382,4 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,7%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×