Iceland Travel hlaut virt markaðsverðlaun 8. desember 2010 15:37
Ferðaskrifstofan Iceland Travel hlaut í síðustu viku virt verðlaun á sviði ferðaþjónustu fyrir besta markaðsframtak ársins á árlegri uppskeruhátíð Seatrade Insider, en það er eitt stærsta fagtímarit heims á sviði skemmtiferðasiglinga. Í tilkynningu segir að Iceland Travel þjónusti mörg stærstu skipafélög heims á hverju sumri með því að skipuleggja dagsferðir fyrir farþega þeirra skipa sem koma við á Íslandi á hverju sumri. Markaðsframtakið fólst í endurgerð á laginu "Walking in a Winter Wonderland" sem starfsmenn fyrirtækisins tóku upp og sendu til allra samstarfsaðila, viðskiptavina og tengiliða sinna á síðasta ári. Myndbandið var framleitt innanhúss að öllu leyti og vakti mikla lukku á meðal þeirra skipafélaga sem eru í viðskiptum við Iceland Travel. Verðlaunin voru afhent í óperuhúsinu í Nice í Frakklandi að viðstöddum öllum helstu áhrifamönnum skemmtiskipaiðnaðarins. "Þessi verðlaun veita okkur mikinn meðbyr hjálpa okkar fyrirtæki við að markaðssetja Ísland sem áhugaverðan áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Allir þeir sem taka ákvarðanir í þessum bransa voru þarna samankomnir og fengu þannig smjörþefinn af því sem Ísland býður upp á sem áfangastaður. Viðbrögðin sem við höfum fengið í kjölfarið hafa verið mjög jákvæð," segir Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri Iceland Travel. Í umsögn dómnefndar sagði meðal annars að einfaldleiki myndbandsins hefði verið heillandi, en umfram allt væri það frumlegt og skemmtilegt.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira