Gengi hluta í Marel hefur hækkað um 150% frá botninum 8. desember 2010 08:07 Theo Hoen forstjóri Marel.
Gengi hlutabréfa í Marel náði 100 kr. á hlut í vikunni en gengi félagsins hefur hækkað stöðugt frá því að það náði botni í apríl 2009 þegar gengið fór niður í um 40 kr. á hlut, en það var um svipað leiti og erlendir markaðir náðu botni. Gengið hefur reyndar hækkað um 150% frá botni en hafði áður fallið um 60%. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningar Arion banka. Þar segir að gengi Marel hf. er í dag á svipuðum slóðum og það var þegar best lét á mörkuðum og hefur því náð fyrri hæðum. Í gær fóru fram viðskipti með um 7% hlut í Marel hf. að upphæð um 4,7 ma.kr. þar sem verð á hlut var 95 krónur. Seljandinn er Horn fjárfestingarfélag ehf. en félagið er í eigu Landsbankans og heldur utan um hlutabréfaeignir bankans. Eftir viðskiptin á Horn rétt undir 14% hlut í Marel og er ennþá næststærsti hluthafi félagsins. Eyrir Invest er eftir sem áður langstærsti hluthafi Marel og á um 32% hlut. „Með þessum viðskiptum losar Landsbankinn um töluverðan hlut sinn í félaginu, sem verður að teljast jákvætt skref enda mikið búið að ræða eignarhald bankanna á fyrirtækjum og hversu brýnt það er að bankarnir komi þessum fyrirtækjum af efnahagsreikningum sínum sem fyrst," segir í Markaðspunktunum. „Þar að auki kemst mögulega meira flot á hlutabréf í Marel eftir þessi viðskipti þar sem kaupendurnir eru fleiri en einn, þó þeir séu líklegast flestir lífeyrissjóðir gæti verið að þeir hafi ekki allir sömu skoðunina þegar fram í sækir og því myndist meiri hreyfing á bréfunum en ella." Þá segir að Lífeyrissjóður Verzlunarmanna hefur verið á kauphliðinni í þessum viðskiptum og aukið lítillega við sig í félaginu, kominn í 5,8%, en ekki liggur fyrir hverjir aðrir komu að þeim.
Mest lesið Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira