Ársæll segir hollenska ríkið hafa viljað sig áfram í skilanefnd Þorbjörn Þórðarson skrifar 8. desember 2010 13:30 Ársæll Hafsteinsson er meðal háttsettustu starfsmanna skilanefndar Landsbankans. Hann var áður yfirmaður lögfræðisviðs bankans og þar á undan yfirmaður lögfræðisviðs Búnaðarbankans. Mynd/Fréttir Stöðvar 2
Ársæll Hafsteinsson einn yfirmanna skilanefndar Landsbankans var áður yfir útlánaeftirliti Landsbankans og dregur nú fyrrverandi yfirmenn sína til ábyrgðar vegna umdeildra útlána. Fjármálaeftirlitið vísaði honum úr skilanefnd en hann var ráðinn strax aftur sem starfsmaður. Ársæll Hafsteinsson meðal háttsettustu manna hjá Landsbankanum fyrir hrun og var yfirmaður lögfræðisviðs. Eftir hrun settist Ársæll í skilanefnd Landsbankans, var vikið þaðan að kröfu Fjármálaeftirlitsins, en var þá ráðinn aftur sem starfsmaður nefndarinnar. Ársæll var meðal þeirra starfsmanna sem réðu sig yfir til Landsbankans eftir að Björgólfsfeðgar eignuðust bankann árið 2003 og margir færustu starfsmanna Búnaðarbankans fylgdu Sigurjóni Þ. Árnasyni yfir í Landsbankann. Veittu upplýsingar um skuldastöðu Norðurljósa til þriðja aðila Hjá Búnaðarbankanum hafði Ársæll komist í hann krappann því hann, sem yfirmaður lögfræðisviðs Búnaðarbankans og Árni Tómasson, þáverandi bankastjóri, voru sakaðir um að veita upplýsingar um skuldastöðu Norðurljósa við bankann til þriðja aðila. Hart var tekist á um þetta í fjölmiðlum á sínum tíma og þetta varð tilefni úrskurðar frá Fjármálaeftirlitinu sem taldi að Búnaðarbankinn hefði gerst brotlegur við lög og að starfsmenn bankans hefðu stundað óeðlilega viðskiptahætti. Sem kunnugt er hafa skilanefnd og slitastjórn Landsbankans krafið fyrrverandi bankastjóra bankans þá Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason um 37 milljarða króna. Önnur krafan er upp á 18 milljarða króna vegna láns sem bankinn veitti Straumi hinn 2. október 2008, aðeins örfáum dögum fyrir hrun. Ársæll sagði í samtali við fréttastofu að ákvarðanir um að krefja bankastjórana fyrrverandi um þessar fjárhæðir hefðu verið teknar af skilanefnd og slitastjórn og þær yrðu að svara fyrir þær og sagðist ekkert hafa komið nálægt málinu. Hann sagðist ekki hafa verið, sem yfirmaður lögfræðisviðs og útlánaeftirlits Landsbankans, í stöðu til að stöðva einstakar lánveitingar. Þá sagði hann tengsl sín við Björgólf Guðmundsson engin. Ársæll sagði jafnframt að kröfuhafar Landsbankans hefðu lagt á það áherslu að hann yrði áfram við störf hjá skilanefndinni og nefndi þar til sögunnar breska og hollenska ríkið sem eru stórir kröfuhafar.
Mest lesið Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira