Viðskipti innlent

Vísbendingar um minni einkaneyslu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Líkur eru á að einkaneysla hafi dregist lítillega saman á öðrum fjórðungi ársins frá sama tíma í fyrra ef marka má tölur um kortaveltu.

Greining Íslandsbanka segir að samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun hafi kreditkortavelta numið 26,4 milljörðum í júní síðastliðnum. Það jafngildir 4,8% aukningu í krónum talið frá sama mánuði í fyrra, en að raungildi hafi kreditkortavelta hins vegar aukist um 0,8% á sama tíma.

Þá vekur athygli að erlend kortavelta jókst um ríflega fjórðung á milli ára, þegar leiðrétt hefur verið fyrir gengisbreytingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×