Hagnaður RARIK tæpar 700 milljónir í fyrra 12. febrúar 2010 08:51
Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður RARIK í fyrra 697 milljónir króna en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.843 milljónir króna eða 32,7% af veltu tímabilsins. Hefur EBITDA félagsins hækkað um rúm 50% frá árinu 2008. Handbært fé frá rekstri var 1.847 milljónir króna.Í tilkynningu segir að rekstarafkoman var mun betri en 2008 sem rekja má til framangreindra aðgerða í rekstri, hækkunar á gjaldskrá og einnig til hagkvæmrar eigin raforkuframleiðslu. Niðurstaða rekstrarreiknings er þrátt fyrir þetta í járnum að teknu tilliti til fjármagnsliða.Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11% frá árinu 2008 en rekstrargjöld hækkuðu um tæp 1,8%. Að undanskildum orkukaupum, orkuflutningi og afskriftum lækkuðu almenn rekstrargjöld um tæp 9% .Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2009 var 1.731 milljónir króna sem er betri árangur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þær aðgerðir sem ráðist var í fólust m.a. í samningum við starfsmenn um lækkun launa og styttingu vinnutíma, en einnig í niðurskurði á aðkeyptri þjónustu og almennum niðurskurði í rekstri.Fjármagnsgjöld á árinu 2009 voru 1.804 milljónir króna sem má að stórum hluta rekja til áframhaldandi veikingar krónunnar og hárra vaxta á innlendum lánum. Í áætlunum ársins var gert ráð fyrir styrkingu krónunnar sem ekki gekk eftir.Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 331 milljón króna.Ákveðið var á árinu 2009 að nýta heimildir reikningsskilastaðla til þess að endurmeta rekstrarfjármuni í raforkuframleiðslu hjá dótturfélaginu Orkusölunni. Samkvæmt efnahags-reikningi voru heildareignir RARIK í árslok 35.663 milljónir króna, heildarskuldir námu 19.682 milljónum króna, eigið fé var 15.982 milljónir króna og eiginfjárhlutfall því 44,8%.Horfur í rekstri RARIK á árinu 2010 eru traustar, en afkoman á næstu tímabilum ræðst hins vegar að verulegu leyti af gengi krónunnar, verðlagsþróun og almennri þróun efnahagsmála. Gengi krónunnar hefur lítið styrkst það sem af er ári og er ekki gert ráð fyrir styrkingu í áætlunum ársins, en vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og má gera ráð fyrir að það haldist út árið.Gert er ráð fyrir samdrætti í fjárfestingum í dreifikerfum, en svipaðri orkusölu og árið áður, að undanskildri aukningu vegna dreifingar og sölu raforku á Húsavík, en rafdreifikerfið á Húsavík var keypt á síðasta ári og yfirtekið um áramót. Áframhaldandi ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að draga úr rekstrarkostnaði og gjaldskrár verið hækkaðar. Með þessum aðgerðum er reiknað með jákvæðri afkomu á árinu 2010.Vegna afkomu ársins 2008 náðist ekki að uppfylla skilmála í erlendum lánasamningum. Með afkomu ársins 2009 eru allir skilmálar lánasamninga uppfylltir og náðst hefur samkomulag við erlenda lánardrottna um óbreytt lánskjör og að tímabundin hækkun álags verði felld niður.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira