Greining MP Banka spáir að verðbólga minnki í 3,1% 16. nóvember 2010 12:37
Greining MP Banka spáir því að árs verðbólga minnki úr 3,3% og í 3,1% í þessum mánuði. Þetta kemur fram í Markaðsvísi greiningarinnar. Fram kemur að bensín hefur hækkað í verði um 2,5% frá síðustu mælingu Hagstofunnar. Gjaldskrárhækkun Orkuveitunnar hefur einnig áhrif þótt þau séu minni en í síðasta mánuði. Þessir tveir liðir valda hækkun neysluverðsvísitölu um ríflega 0,3%. Flestir aðrir liðir hækka hóflega og spáir greiningin því að vísitala neysluverðs hækki um 0,5% í nóvember. Gangi spáin eftir lækkar ársverðbólgan úr 3,3% í 3,1%. "Ekki eru horfur á miklum eftirspurnarþrýstingi á verðlag næstu misserin. Mikill slaki er í hagkerfinu og atvinnuleysi gæti aukist á ný. Engu að síður eigum við von á því að samið verði um einhverjar launahækkanir og að þær muni leiða til hækkunar verðlags. Virkt og öflugt fjármálakerfi er forsenda fyrir eðlilegri samkeppni á markaði. Meðan það er ekki fyrir hendi er líklegt að kostnaðarhækkanir hafi fljótt áhrif á verðlag," segir í Markaðsvísinum. "Við eigum von á því að gengið muni veikjast á fyrri hluta næsta árs og gangi það eftir mun skapast frekari þrýstingur á verðlag. Við spáum því að verðhækkanir á allra næstu mánuðum verði hóflegar, en þegar líða tekur á næsta ár aukist verðbólga á ný vegna kostnaðarhækkana. Verðbólga dettur líklega tímabundið undir verðbólgumarkmið á fyrri hluta næsta árs. Þegar líða tekur á árið má síðan búast við því að verðbólga aukist á ný og verði 3,5% til 4% í lok næsta árs."
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira