Viðskipti innlent

Afkoma Icelandair batnar töluvert milli ára

Icelandair skilaði 5,2 milljarða kr. hagnaði á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta er töluvert betri afkoma en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 4 milljörðum kr.

Í tilkynningu um uppgjörið segir að mikill munur sé á rekstrartekjum félagsins á milli ára en þær hafi aukist um 5,8 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Á sama tímabili hafi rekstrargjöld aftur á móti aukist um 4 milljarða kr. milli ára.

„Bætt afkoma skýrist einkum af auknu framboði og aukinni sölu á Norður-Atlantshafsmarkaði en jafnframt af góðri sætanýtingu og tekjustýringu í leiðakerfi Icelandair," segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair í tilkynningunni.

„Þrátt fyrir góða afkomu á fyrstu níu mánuðum ársins liggur fyrir að framundan eru tveir krefjandi ársfjórðungar. Áframhaldandi óvissa í íslensku efnahagslífi er fyrirtækinu kostnaðarsöm og á næsta ári eru líkur á að samkeppni í millilandaflugi til og frá Íslandi harðni umtalsvert .

Jafnframt má búast við auknu framboði yfir Atlantshafið en við teljum fyrirtækið vel í stakk búið til að mæta þeirri samkeppni með aukinni þjónustu, hagkvæmri verðlagningu og stöðugu sætaframboði til og frá landinu,"








Fleiri fréttir

Sjá meira


×