Viðskipti innlent

Íslandsbanki veitir 10 námsstyrki

Íslandsbanki veitti í gær framúrskarandi nemendum námsstyrki að heildarupphæð 3,4 milljónir króna. Námsstyrkir eru veittir árlega til námsmanna í viðskiptum við bankann sem eru félagar í Námsvild Íslandsbanka og í ár bárust 433 umsóknir um styrki.

Í tilkynningu segir að veittir voru fjórir styrkir að upphæð 500 þúsund krónum hver til framhaldsnáms á háskólastigi, fjórir styrkir að upphæð 300 þúsund krónur hver til háskólanáms og loks tveir styrkir að upphæð 100 þúsund krónur hvor til framhaldsskólanáms.

Dómnefnd skipuðu þau Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík, Gylfi Dalmann, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, og Hafsteinn Bragason mannauðsstjóri Íslandsbanka en hann var jafnframt formaður dómnefndar.

Styrkhafar í ár eru:

Hákon Blöndal. Hákon er nemandi við Verkmenntaskólann á Akureyri og stundar þar nám á vélstjórnarbraut.

Hulda Þorsteinsdóttir. Hulda er nemandi á náttúrufræðibraut - líffræðisviði í Kvennaskóla Íslands.

Alexandra Jóhannesdóttir. Alexandra stundar nám í lögfræði við Háskóla Íslands.

Árni Már Þrastarson. Árni Már stundar nám til tvöfaldrar BS gráðu í hugbúnaðarverkfræði og tölvunarfræði við Háskóla Íslands.

Sigríður Rún Siggeirsdóttir. Sigríður Rún er nemandi í skó- og fylgihlutahönnun við Istituto Europeo Di Design í Róm.

Sigtryggur Kjartansson. Sigtryggur lauk stúdentsprófi með hæstu einkunn frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja í desember 2009 og mun í haust setjast á skólabekk í Massachusetts Institute of Technology (MIT)

Ingvar Sigurjónsson. Ingvar stundar nám í til meistaraprófs í alþjóðahagfræði og fjármálum við Brandeis International Business School

María Helga Guðmundsdóttir. María Helga stundar nám til meistaraprófs í jarðfræði við Stanford University.

Hörður Kristinn Heiðarsson. Hörður stundar doktorsnám á sviði rafmagnsverkfræði við University of Southern California.

Lilja Þorsteinsdóttir. Lilja stundar doktorsnám í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×