Viðskipti innlent

Launavísitalan hækkaði örlítið í apríl

Launavísitala í apríl 2010 er 369,5 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,0%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala kaupmáttar launa í apríl 2010 er 104,2 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 4,0%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×