SA: Hópur fyrirtækja á leið í þrot vegna kreppunnar 20. maí 2010 09:20 Vilhjálmur undirstrikar jafnframt að ef eignir fyrirtækja eru seldar með miklum afföllum raski það samkeppnisstöðu þeirra sem haldi áfram rekstri á sama markaði.
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsis (SA) segir að samkvæmt upplýsingum frá bönkunum muni hópur fyrirtækja fara í þrot vegna kreppunnar. Framundan sé heilmikil endurskipulagning í atvinnulífinu sem ljúki vonandi að mestu á næstu 12 mánuðum. Vilhjálmur segir stöðu fyrirtækja vera mismunandi en erlend lán valdi mörgum þeirra vandræðum. Rætt var við Vilhjálm í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í kjölfar frétta um að BM Vallá var úrskurðað gjaldþrota í byrjun vikunnar eftir áratuga farsælan rekstur. Vilhjálmur segir afar dapurlegt að svona hafi farið fyrir fyrirtækinu sem hafi verið rekið af miklum metnaði í gegnum tíðina. Bylgjuviðtalið er birt á vefsíðu SA. „Sum fyrirtæki voru nýbúin að fjárfesta mikið og voru skuldsett út af því, önnur fyrirtæki voru hóflega skuldsett en með lánin í erlendum gjaldmiðlum og það hefur þess vegna komið niður á þeim. En svo eru að sjálfsögðu til fyrirtæki sem eru skuldlítil og munu komast í gegnum kreppuna," segir Vilhjálmur. Vilhjálmur segir eðlilegt að íslensk fyrirtæki hafi tekið erlend lán þar sem vaxtamunur á milli lána í krónum og erlendra lána hafi verið svo mikill. Enginn sem hafi tekið erlend lán á sínum tíma reiknað með því í sínum villtustu útreikningum að gengi krónunnar myndi falla eins mikið og það gerði með alvarlegum afleiðingum. Varðandi endurskipulagingu fyrirtækja segir Vilhjálmur að hafa verði í huga hvort rekstur þeirra er lífvænlegur og skili tekjum upp í skuldir. Spyrja verði hvort hagstætt sé að setja slík fyrirtæki í þrot. „Við þurfum að átta okkur á því að gjaldþrot hefur í för með sér mikið verðmætatap kröfuhafa, sérstaklega ef eignir fara á brunaútsölu." Vilhjálmur undirstrikar jafnframt að ef eignir fyrirtækja eru seldar með miklum afföllum raski það samkeppnisstöðu þeirra sem haldi áfram rekstri á sama markaði.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira