Steinþór Pálsson ráðinn bankastjóri Landsbankans 20. maí 2010 16:59
Bankaráð Landsbankans (NBI hf.) hefur ráðið Steinþór Pálsson til að gegna störfum bankastjóra og tekur hann við af Ásmundi Stefánssyni. Steinþór skrifaði undir ráðningarsamning við Gunnar Helga Hálfdanarson, formann bankaráðs bankans í dag. Hann mun hefja störf í bankanum 1. júní. 42 umsóknir bárust þegar starf bankastjóra var auglýst. Gunnar Helgi Hálfdanarson lýsti ánægju með ráðninguna samkvæmt tilkynningu sem bankinn sendi frá sér. ,,Steinþór er reyndur stjórnandi, sem hefur þá kosti sem bankaráðið hefur leitað að. Stefnan var að ráða bankastjóra sem væri leiðtogi, öflugur rekstrarmaður með bankareynslu og gæti unnið vel með viðskiptavinum, bankaráði og starfsmönnum bankans. Bankaráðið telur gríðarlega mikilvægt að fyrir Landsbankanum fari maður sem getur leitt hann áfram af þeim krafti og því þori sem þarf til að koma bankanum þangað sem hann á heima, í efsta sæti úrvalsdeildarinnar," segir Gunnar. Steinþór Pálsson hefur langa og farsæla reynslu af stjórnunarstörfum við rekstur bankastofnana og framleiðslufyrirtækja innanlands og erlendis og mikla reynslu af breytingastjórnun og stefnumótun. Steinþór segist hlakka til að takast á við verkefnið og kvíði því ekki. ,,Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er hart í ári í íslensku atvinnulífi og að starfsemi Landsbankans skiptir miklu um hvernig endurreisn þess gengur. Ég tel hins vegar að bankinn sé vel mannaður og að staða hans sé þannig að hann geti axlað þá ábyrgð sem honum er falin. Ég hlakka til að kynnast starfsfólki bankans og vinna með því að vexti og viðgangi hans." Steinþór er kvæntur Áslaugu Guðjónsdóttur tölvunarfræðingi og eiga þau tvær dætur. Hann lauk prófi í viðskiptafræði frá HÍ 1985 og MBA name frá Edinborgarháskóla 1995. Starfsferill: 1986-1989: Framkvæmdastjóri lánasviðs Verzlunarbanka Íslands 1990-2000: Starfsmaður Íslandsbanka, m.a. sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu auk þess sem hann var virkur í stefnumótunarstarfi Íslandsbanka og samrunaferli forvera hans. 2001-2002: Fjármálastjóri- og rekstrarstjóri, Urður, Verðandi og Skuld 2002-2010: Framkvæmdastjóri Actavis á Möltu, framkvæmdastjóri Actavis í Bandaríkjunum og nú tæp 2 síðustu árin framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótuna.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira