Hlutur Margeirs í MP þynnist út Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. desember 2010 18:48 Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður MP banka.
Hlutur Margeirs Péturssonar þynnist út og ríkjandi hluthafar verða í minnihluta þegar nýir fjárfestar koma að MP banka, en bankann vantar þrjá milljarða króna til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins. Evrópskir fjárfestar hafa sýnt áhuga á bankanum. MP banki uppfyllir ekki kröfur um eiginfjárhlutfall sem Fjármálaeftirlitið hefur sett bankanum. Lágt eiginfjárhlutfall þýðir að bankar eru mjög viðkvæmir fyrir breytingum á virði eigna sinna. FME gerði í nóvember kröfur til MP banka um að styrkja eigið fé sitt og fékk ákveðna tímafresti til þess. Einn liður í því er aðkoma nýrra fjárfesta að bankanum, en stjórn bankans á nú í viðræðum við nýja fjárfesta. Þið eruð í viðræðum við þrjá mismunandi hópa fjárfesta um að leggja bankanum til nýtt hlutafé. Þið hafið miðað við þrjá milljarða króna, hvers vegna ekki hærri fjárhæð? „Við höfum fyrst og fremst verið að horfa til þess hvaða fjármagn bankinn þarf til að tryggja stöðu sína og þetta miðast við það," segir Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður MP banka. Er þetta þá til þess að uppfylla kröfur FME? „Já, og það sem við teljum nauðsynlegt sjálf til að bankinn geti eðlilega vaxið og dafnað." Þetta eru þrír mismunandi fjárfestahópar. Hvaða menn eru þetta? „Þetta eru fagfjárfestar við takmörkuðum hópinn við fagfjárfesta á þessu stigi og þetta eru innlendir og erlendir aðilar sem koma að þessu. Ég get ekki sagt meira á þessu stigi." Mun ekki hlutafjáreign núverandi hluthafa bankans þynnast út við þessa hlutafjáraukningu? „Jú, við gerum ráð fyrir því að þeir verði í minnihluta," segir Ragnar Þórir. Þetta verða ákveðin tímamót því að stofnandi bankans, Margeir Pétursson, verður í minnihluta en bankinn leiðir nafn sitt af nafni hans. Að sögn Ragnars eru þetta evrópskir fjárfestar. Hann segir að þetta eigi að skýrast á næstu vikum.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira