Gott gengi á mörkuðum erlendis bætir stöðu lífeyrissjóða 11. maí 2010 11:30 Þetta er mesta aukning á eign sjóðanna á milli mánaða sem sést hefur í heilt ár, en eignir sjóðanna hafa á því tímabili aukist um að meðaltali um 20 milljarða kr. hvern mánuð.
Það sem veldur miklilli aukningu á eignum lífeyrissjóðanna er gott gengi á hlutabréfamörkuðum erlendis. Eignir lífeyrisjóðanna í erlendum hlutabréfasjóðum jukust um 21 milljarð kr. í marsmánuði en alls jukust erlendar eignir sjóðanna um 25 milljarða kr. Þetta kemur fram í Morgnkorni greiningar Íslandsbanka þar sem rætt er um að hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris nam 1.846 milljörðum kr. í lok mars síðastliðins og jókst um 44 milljarða kr. í mánuðinum skv. tölum sem Seðlabankinn birti í gær. Það jafngildir um 2,4% aukningu frá fyrri mánuði. Í Morgunkorninu segir að þá jókst einnig eign lífeyrisjóðanna í innlendum íbúðabréfum um tæpa 12 milljarða kr. Þar hefur einhver áhrif 1,1% hækkun vísitölu neysluverðs í febrúarmánuði, auk þess sem sjóðirnir hafa vafalítið reynst drjúgir kaupendur í marsútboði Íbúðalánasjóðs. Þetta er mesta aukning á eign sjóðanna á milli mánaða sem sést hefur í heilt ár, en eignir sjóðanna hafa á því tímabili aukist um að meðaltali um 20 milljarða kr. hvern mánuð. Í lok mars síðastliðins hafði hrein eign lífeyrissjóðanna hækkað um 232 milljarða kr. frá sama tíma fyrir ári, sem jafngildir hækkun upp á 14,4% að nafnvirði. Sé tekið tillit til verðbólgu nemur hækkunin 5,4%. Þar verður þó að hafa í huga að iðgjaldagreiðslur inn í lífeyrissjóði eru til muna hærri en lífeyrisgreiðslur og útflæði vegna innlausnar séreignarsparnaðar. Raunávöxtun sjóðanna er því mun minni en framangreind tala gefur til kynna.Lífeyrissjóðirnir hafa undanfarnar vikur verið að taka til í bókum sínum og afskrifað stóran hluta af skuldabréfum innlendra hrunfyrirtækja. Ljóst er því að staða þeirra eftir hrun mun senn skýrast og mun koma í ljós í tölum Seðlabankans yfir eignir þeirra á næstu mánuðum. Eins og staðan er nú samkvæmt tölum Seðlabankans eiga lífeyrissjóðirnir samtals 127 milljarða kr. í skuldabréfum innlendra fyrirtækja en fyrir hrun stóð þessi eign í 190 milljörðum kr. Þá eiga lífeyrissjóðirnir nú 45 milljarða kr í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum en áttu fyrir hrun í september 2008, 150 milljarða kr í slíkum eignum. Þegar mest var um mitt ár 2007 var innlend eign lífeyrissjóðanna í hlutabréfum og hlutabréfasjóðum 320 milljarðar kr.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Sjá meira