Landsbankinn býður 25% lækkun á höfuðstól erlendra lána 11. maí 2010 08:02 Fyrirtæki og einstaklingar sem nýta sér höfuðstólslækkun afsala sér ekki réttindum ef erlend lán verða dæmd ólögleg.
Landsbankinn býður nú fyrirtækjum og einstaklingum 25% höfuðstólslækkun lána í erlendri mynt gegn því að láni sé breytt í verðtryggð eða óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Jafnframt hefur bankaráð Landsbankans samþykkt aðrar aðgerðir til stuðnings fyrirtækjum, einstaklingum og heimilum til að styðja við endurreisn íslensks efnahagslífs.Þetta kemur fram á vefsíðu Landsbankans. Þar segir að bankinn býður nú fyrirtækjum sem tekið hafa lán í erlendri mynt að sækja um höfuðstólslækkun sem nemur 25% af höfuðstól láns, gegn því að láni sé breytt í verðtryggð eða óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Í útreikningi á lækkun höfuðstóls verður miðað við stöðu lána þann 30. apríl 2010.Jafnframt hefur bankaráð bankans samþykkt aðrar aðgerðir til stuðnings fyrirtækjum í landinu sem eiga að verða til þess að hraða mjög úrvinnslu skuldamála fyrirtækja. Samanlagt mynda þessar nýjungar bankans, auk þeirra breytinga sem gerðar eru á eldri lausnum, öfluga umgjörð um lausnir fyrir fyrirtæki og hraða mjög meðferð skuldbreytinga þeirra.Helstu kostir höfuðstólslækkunarinnar eru:Skuldir lækka umtalsvertLán verða í tekjumyntum fyrirtækisGreiðslubyrði verður jafnariDregur úr gengis- og vaxtaáhættuÖll rekstrar- og fasteignafélög sem tóku lán í erlendri mynt fyrir 8. október 2008 geta sótt um lækkunina. Þetta er tímabundið úrræði og verður í boði til 30. júlí.Landsbankinn kynnir einnig nýjar og endurbættar lausnir vegna skuldavanda einstaklinga og heimila. Þær breytingar sem gerðar hafa verið miða að því að einfalda skuldabreytingar, hraða afgreiðslu mála og skerpa áherslur bankans á þessu sviði. Unnið hefur verið að endurbótum á lausnum bankans í ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefur frá því þær voru innleiddar. Markmið bankans er að þjóna betur þörfum viðskiptavina þannig að þeir geti greitt úr vanda sínum hraðar og betur en fyrr.Breytingar á reglum um höfuðstólsleiðréttingu lána í erlendri mynt. Afsláttur verður 25% á öll slík lán sem breytt er í íslenskar krónur, eða greidd upp, óháð lánstíma og nær til höfuðstóls og áfallinna vaxta.Hægt verður að greiðslujafna erlend lán sem tekin voru til annars en húsnæðiskaupa. Breyting á 110% aðlögun íbúðalána sem fækkar þeim sem þurfa að undirgangast sértæka skuldaaðlögun. Veruleg breyting til bóta fyrir þá sem sitja uppi með tvær eignir og geta ekki staðið undir greiðslubyrði af þeim báðum.Afturvirk höfuðstólsleiðrétting gildir fyrir þá sem hafa greitt upp lán að hluta eða heild frá 8. október 2008 eða hafa fengið leiðréttingu á höfuðstól en með minni lækkun.Fyrirtæki og einstaklingar sem nýta sér höfuðstólslækkun afsala sér ekki réttindum ef erlend lán verða dæmd ólögleg.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira