Nýskráningum bifreiða heldur áfram að fækka 4. febrúar 2010 11:57
Í janúar síðastliðnum voru nýskráðir 133 bílar hér á landi sem er fækkun upp á 43% frá sama mánuði 2009. Þannig voru nýskráðir 235 bílar í janúar fyrir ári en þess má geta að þá hafði þeim fækkað um 89% frá sama tíma 2008. Þetta kemur fram í tölum sem Umferðastofan hefur birt um nýskráningar bifreiða. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi fækkun í nýskráningum bifreiða er í takt við þá þróun sem hefur verið hér á landi síðan við upphaf efnahagskreppunnar í febrúar árið 2008. Þó voru nýskráðar bifreiðar í desember síðastliðnum 74% fleiri en í sama mánuði 2008 sem var fyrsta aukning sem mælist yfir tólf mánaða tímabil í um tveggja ára skeið. Var bílainnflutningur með minnsta móti á síðastliðnu ára enda minnkaði sala nýrra bíla snarlega í kjölfar bankahrunsins. Á árinu 2009 voru einungis nýskráðar 2.830 bifreiðar hér á landi en árið á undan var fjöldi þeirra 12.308. Er því að ræða um 77% samdrátt milli ára. Þessi mikli samdráttur á nýskráningu bifreiða er einnig vel sjáanlegur í tölum um afkomu ríkissjóðs. Þannig höfðu vörugjöld af ökutækjum skilað rúmlega 77% minni tekjum á fyrstu 11 mánuðum ársins 2009 en á sama tímabili 2008. Ljóst er að veiking krónunnar spilar hér stórt hlutverk enda er þó nokkur fylgni milli gengisþróunar og fjölda nýskráninga bifreiða. Var krónan að meðaltali 25% veikari á árinu 2009 en 2008. Þess má geta að hér er ekki tekið tillit til þeirra bifreiða sem voru afskráðar á árinu, þ.e. bifreiðar sem fluttar voru aftur út. Fór því þó nokkur fjöldi þeirra nýskráðu bifreiða á síðastliðnu ári ekki í umferð. Ef tekið er tillit til þess þá var heildarfjöldi nýskráðra bifreiða á árinu 2009 einungis 2.593 samkvæmt tölum sem Bílgreinasambandið tekur saman.
Mest lesið Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fleiri fréttir Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent