Gefur ekki upp hvað hann mun kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. janúar 2010 11:15 Ólafur Ragnar Grímsson á Bessastöðum þegar hann synjaði lögunum um Icesave.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gefur ekki upp hvað hann ætlar að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-frumvarpið sem verður haldin í mars. Það var fréttaspyrill hjá Reuters sem spurði Ólaf Ragnar hvað hann hygðist kjósa. „Ég hef ekki gefið upp afstöðu mína um það hvað ég mun kjósa," sagði Ólafur Ragnar í viðtalinu og bætti við að synjun á undirskrift laganna hafi einmitt verið til þess gerð að leyfa þjóðinni að eiga síðasta orðið í þessu umdeilda máli. Ólafur Ragnar útskýrði svo vel og vandlega hvað myndi gerast ef Íslendingar synjuðu lögunum staðfestingu auk þess sem hann áréttaði enn og einu sinni að íslenska ríkið myndi ekki hlaupast undan skuldinni, þvert á móti myndi ríkið standa við sínar skuldbindingar. Þá benti Ólafur Ragnar á að Icesave-skuldin væri svo mikil fjárhagsleg byrði á íslenska skattgreiðendur að það væri hægt að líkja því við ef Bretar þyrftu að borga 700 milljarða punda. Spyrillinn, Steve Tyler, sagði síðan við Ólaf Ragnar að hann hljómaði eins og maður sem myndi kjósa gegn Icesave-frumvarpinu. Ólafur Ragnar brást þá heldur hart við og sagðist eingöngu vera að reyna útskýra málið. Í lok viðtalsins sagði Ólafur Ragnar að framtíð Íslands væri björt enda landið uppfullt af hreinni orku og vatni; auðlindir sem spáð er miklu verðmæti í framtíðinni. Hægt er að skoða myndbandið hér.
Mest lesið Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Innlent Fundu spjótsodda alsetta gulli mörghundruð árum eldri en talið var mögulegt Erlent Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Innlent Segir Rússa viljuga en Selenskí ekki Erlent Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Innlent „Miðað við að vera handalaus hefur líf mitt gjörsamlega snúist um 180 gráður“ Innlent Trump hundfúll að fá ekki greiða gegn greiða Erlent Meiri ógn af smábátum í Karíbahafinu en Rússlandi Erlent Herflugvél snúið við í neyð Innlent Átök blossa aftur upp á landamærum Taílands og Kambódíu Erlent Fleiri fréttir Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Málaflokkurinn kosti sveitarfélögin milljarða „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Áföllin hafi mótað sig Gramir að næstu göng á lista séu ekki á Austurlandi Herflugvél snúið við í neyð Mikið áhyggjuefni ef læknar komast ekki erlendis í sérnám Talsverður fjöldi uppfylli ekki lágmarkskröfur um netöryggi Ákvörðunin hafi einnig verið erfið fyrir stjórnarliðana Skortur á sérnámslæknum og ósáttir Austfirðingar Leggja til að lækka innviðagjaldið enn meira Katrín gerir upp áföllin og tekist á um samgönguáætlun Réðst á starfsmenn lögreglu Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Þrír handteknir fyrir hótanir og vopnalagabrot Hrossahjörð á brokki fram Álftanesveg Krefjast skýringa á boðuðum breytingum ráðherra á framhaldsskólum Sonur Ölmu Möller íhugar framboð Gefa út litlausa viðvörun Karlmaður handtekinn í tengslum við mannslát Vonast til að opna nýtt Konukot sem fyrst Ekki markmiðið að takmarka aðgengi fjölmiðla Óvænt breyting hækkaði lyfin um tugi þúsunda „Mér brá við að sjá þessa tölu“ Alltaf ljóst að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Sjá meira